Þurftu að kalla fólk niður af fjalli til að færa bílana

Daníel Freyr Jónsson, svæð­is­sér­fræð­ingur í nátt­úru­vernd­ar­teymi, segir stans­lausar teppur hafa verið á bíla­stæðum við Land­manna­laugar áður en farið var að inn­heimta bíla­stæða­gjöld á álags­tímum í sumar. Kalla hafi þurft bíl­stjóra niður af fjöllum til að færa bíl­ana til að greiða leið fyrir rútum. Nýja fyr­ir­komu­lagið hafi hlotið góð við­brögð hjá gestum.

Þurftu að kalla fólk niður af fjalli til að færa bílana
Nátt­úru­feg­urð Land­manna­laugar eru vin­sæll göngu­staður á sumrin. Mynd: Golli

Í sumar var tekið upp nýtt fyr­ir­komu­lag á bíla­stæð­unum við Land­manna­laugar. Farið var að inn­heimta bíla­stæða­gjöld, en bóka þarf bíla­stæði fyrir fram sem kostar 450 krónur á álags­tíma sem er á milli 8 og 15. 

Spurður út í það hvert til­efni breyt­ing­anna væri segir Daníel Freyr Jónsson, svæð­is­sér­fræð­ingur í nátt­úru­vernd­ar­teymi hjá Umhverf­is­stofnun, að mikil vand­ræði hafi verið á bíla­stæð­inu.

„Stans­lausar teppur. Sér­stak­lega fremst þegar það er komið inn á svæðið. Þar var teppa þar sem bílar voru að leggja með­fram fjall­inu og langt út af svæð­inu. Þá var kannski bíla­röð hátt í kíló­metra út af bíla­stæð­inu,“ segir Daníel.

Þetta hafði í för með sér að rútur komust ekki leiðar sinnar. Þá þurfti að bregða á það ráð að kalla til bíl­stjóra bíl­anna og biðja þá um að færa þá. „Þeir voru oft ein­hvers staðar uppi á fjalli. Það var mikil töf í þessu,“ segir hann. Annað vanda­mál var það hve …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Ég dreg ekki í efa að undanfarin ár hafi ófremdarástand oft og tíðum skapast á bílastæðinu við Landmannalaugar en mér finnst vanta heilan kafla í frásögnina af því hvað varð til þess að Umhverfisstofnun hóf að stýra umferð inn á svæðið. Í upphafi átti nefnilega að leysa vandann á kostnað umhverfisins! – með samþykki Umhverfisstofnunar!

    Fyrir nokkru lagði sveitarstjórn Rangárþings fram áætlanir um gífurlega uppbyggingu innviða fyrir massatúrisma á svæðinu við Landmannalaugar en í þeim fólst meðal annars stórkarlaleg stækkun á bílastæðinu næst laugunum. Umhverfisstofnun lagði blessun sína yfir þessar áætlanir.

    Þegar í ljós kom í fyrra að áætlanir sveitastjórnar Rangárþings stæðust ekki friðlýsingarskilmála Friðlands að Fjallabaki ákvað stjórnin að hefja stækkun bílastæðisins upp á sitt einsdæmi. Þann 13. september 2023 heimilaði stjórnin sjálfri sér að stækka bílastæðið við Námskvísl og stórspilla svæðinu í leiðinni. Náttúruverndarsamtökin Náttúrugrið brugðust strax við og kærðu framkvæmdaleyfið samdægurs og tókst þannig að koma í veg fyrir að svæðinu væri raskað. Í janúar síðastliðnum var framkvæmdaleyfið svo fellt úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála enda í fullkomnu ósamræmi við löggjöf á sviði náttúruverndar og umhverfismála. Þá fyrst vaknaði Umhverfisstofnun og tilkynnti að stýra þyrfti umferð inn á svæðið. Vonandi veit það á gott.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár