
Vísbending er vikurit um viðskipti og efnahagsmál sem hefur komið út óslitið síðan árið 1983. Þar birtast greinar eftir marga af færustu hagfræðingum landsins á aðgengilegu máli.
Áskrift
Viltu gerast áskrifandi? Hafðu samband við visbending@visbending.is.
Fyrir hverja er Vísbending?
Áskrifendur að ritinu starfa í öllum kimum samfélagsins. Markmið Vísbendingar er að miðla fróðleik sem nýtist forystufólki í atvinnulífi og stjórnmálum. Ritið á að gefa heiðarlega mynd af íslensku viðskipta- og efnahagslífi, og stuðla að hreinskiptinni umræðu um frjáls viðskipti á Íslandi og við önnur lönd.
Hversu oft kemur Vísbending út?
Vísbending kemur út vikulega allt árið um kring, með fáeinum undantekningum. Áskrifendum að prentútgáfu Vísbendingar berst einnig yfirlit yfir þær greinar sem birst hafa allt árið um kring.
Hver er útgefandi Vísbendingar?
Kjarninn miðlar ehf. eignaðist útgáfu Vísbendingar sumarið 2017 og hefur gefið ritið út í óbreyttri mynd síðan. Emil Dagsson er ritstjóri Vísbendingar.
Ég vil skrifa í Vísbendingu. Hvernig ber ég mig að?
Ef þú hefur áhuga á að senda okkur greiningar eða greinar til birtingar í Vísbendingu er öllum velkomið að senda okkur póst á visbending@visbending.is.