„Kom mér á óvart hve hratt ég gat hlaupið“

Sigfúsi Öfjörð ýtu­stjóra tókst að bjarga jarð­ýtu sinni með miklum naum­indum frá hraun­flæð­inu í morgun. En eftir að gos hófst í grennd við Grinda­vík flæddi hraunið í átt að vinnu­vélum verk­taka sem unnið höfðu að gerð varn­ar­garða. Jarðýta Sigfúsar er sú stærsta sinnar teg­undar hér á landi. Þegar Sigfús fékk leyfi til þess að forða ýtunni frá hraun­inu var ein rúðan þegar sprungin vegna hit­ans. Slík var nálægðin.

„Kom mér á óvart hve hratt ég gat hlaupið“
Sigfús Öfjörð náði að bjarga jarð­ýtu sinni frá hraun­straumnum í morgun. Hann hefur áður kynnst nátt­úru­ham­förum við störf sín.

Sigfús Öfjörð ýtu­stjóri þurfti að hafa hröð hand­tök við að bjarga jarð­ýtu sinni frá því að verða flæð­andi hrauni að bráð. Jarðýtan var ásamt öðrum vinnu­tækjum lögð á svæði sem var ansi nálægt gosprung­unni sem mynd­að­ist snemma í morgun. 

Sigfús segir að vel hafi gengið að koma tækja­bún­að­inum í burtu. Hann hefur unnið í allt að 16 tíma á dag við gerð varn­ar­garða á Svarts­eng­is­svæð­inu síðan í októ­ber. Sigfús átti að vera í fríi í dag en var kall­aður út í nótt þegar sást í hvað stefndi. 

Upp­haf­lega var svæðið við gosið rýmt en vegna hag­stæðrar vind­áttar fengu verk­takar leyfi fyrir því að bjarga tækjum sínum frá hraun­rennsl­inu. Samkvæmt frétta­stofu RÚV var sam­an­lagt virði tækj­anna rúmar 500 millj­ónir króna. 

Að eigin sögn var Sigfús svo­lítið skelk­aður meðan á björg­un­ar­að­gerð­unum stóð. Hann og kollegar hans þurftu …

Kjósa
90
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár