Eiginlega allir vilja að auðmenn borgi meiri skatt en hvað þýðir það?

77 pró­sent Íslend­inga vilja að skattar á rík­asta eina pró­sent Íslend­inga verði hækk­aðir. Meiri­hluti kjós­enda allra flokka nema Sjálf­stæð­is­flokks vilja skatta­hækk­anir á þá rík­ustu. Flokk­arnir hafa ólíkar hug­myndir um hvort og þá hvernig á að ráð­ast í skatt­kerf­is­breyt­ingar.

Eiginlega allir vilja að auðmenn borgi meiri skatt en hvað þýðir það?
Íslend­ingar virð­ast sam­mála um að þeir rík­ustu eigi að borga meira til sam­fé­lags­ins. Flokk­arnir eru þó ekki endi­lega sam­mála. Mynd: Stundin / JIS

Mikill meiri­hluti vill að skattar á auð­ug­ustu Íslend­ing­ana verði hækk­aðir. Þetta sýna nið­ur­stöður könn­unar sem MMR gerði fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands. 77 pró­sent svar­enda í könn­un­inni segja að skattar á þennan hóp eigi að vera hærri en þeir eru núna. Aðeins 5 pró­sent vilja lækka skatta á auð­fólk á meðan 18 pró­sent vilja halda þeim óbreyttum.

Á eftir hinum ríkuGunnar Smári er odd­viti Sós­í­alista í Reykja­vík Norður og for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins, sem fer á eftir auð­mönnum í stefnu sinni.

Nið­ur­stöð­urnar eru nokkuð afger­andi hvort sem litið er til ald­urs, kyns, búsetu, mennt­unar eða tekna. Eini hóp­ur­inn sem er á skjön við aðra sam­fé­lags­hópa eru kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Um 37 pró­sent þeirra sem hugsa sér að kjósa flokk­inn í kom­andi kosn­ingum vilja hærri skatta á þá auð­ug­ustu í sam­fé­lag­inu. Til marks um hversu breytt bilið er á afstöðu kjós­enda flokk­anna má nefna að næst minnstur stuðn­ingur við skatta­hækkun er á …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

0,1 prósentið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár