
Eiginlega allir vilja að auðmenn borgi meiri skatt en hvað þýðir það?
77 prósent Íslendinga vilja að skattar á ríkasta eina prósent Íslendinga verði hækkaðir. Meirihluti kjósenda allra flokka nema Sjálfstæðisflokks vilja skattahækkanir á þá ríkustu. Flokkarnir hafa ólíkar hugmyndir um hvort og þá hvernig á að ráðast í skattkerfisbreytingar.








