Höf­uð­stöðv­arnar Háihólmi ehf. flytur inn kjöt­vörur frá útlöndum svo hund­ruðum tonna skiptir en er skráð til húsa í botn­langa­götu á Áftanesi. Ekkert síma­númer er skráð á félagið og erf­ið­leikum bundið að ná á eig­and­ann, sem er þó með net­fang hjá dótt­ur­fé­lagi KS, sem bændur bönn­uðu að flytja inn kjöt. Mynd: Golli

Hulduheildsali flytur inn hundruð tonna af kjöti

Risar á íslenskum kjöt­mark­aði, sem fengu í vor umdeildar und­an­þágur frá sam­keppn­is­lögum til þess að verj­ast sam­keppni að utan, verða á þessu ári umfangs­mestir í kjöt­inn­flutn­ingi og því keppi­nautar sjálfs sín. „Von­brigði,“ segir for­maður atvinnu­vega­nefndar. Umfangs­mikil heild­sala á hund­ruðum tonna af inn­fluttu kjöti virð­ist fyrst og síð­ast leik­tjald fyrir öfl­ug­asta hags­muna­aflið gegn inn­flutn­ingi land­bún­að­ar­vara.

Huldu­fyr­ir­tæki skráð í íbúð­ar­húsi á Álfta­nesi flytur inn stóran hluta alls nauta­kjöts á Íslandi. Fyr­ir­tækið skaut óvænt upp koll­inum þegar félags­menn Kaup­fé­lags Skag­firð­inga gerðu upp­reisn gegn inn­flutn­ingi Kaup­fé­lags­ins, í beinni sam­keppni við eigin félags­menn.

Þrátt fyrir að vera ein umsvifasmesta heild­verslun lands­ins með inn­flutt nauta-, svína- og kjúklinga­kjöt, er erfitt eða ómögu­legt að nálg­ast fyr­ir­tækið eða skráðan for­svars­mann þess, í því skyni að eiga við hann eða fyr­ir­tæki hans við­skipti.

Enda bendir flest til þess að huldu­heild­salan á Álfta­nesi sé lítið annað en milli­liður, til mála­mynda. Gagngert til þess að KS eða dótt­ur­fyr­ir­tæki þess flytji ekki inn kjötið á eigin nafni, sem í orði kveðnu hefur verið eitur í beinum for­svars­manna Kaup­fé­lags­ins og meg­in­þema í áróð­urs­stríði og hags­muna­gæslu KS und­an­farna ára­tugi.

Rétt eins og ann­ara stór­fyr­ir­tækja í land­bún­aði.
Hlut­deild þeirra í kjöt­inn­flutn­ingi hefur þó sjaldan ef nokkurn tím­ann verið meiri en nú, eftir að þessi sömu fyr­ir­tæki …

Kjósa
103
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Ég hef aldrei skilið hvers vegna þessir ,,tollkvótar" hafa aldrei stuðlað að lægra verði en hér kemur skýringin á mannamáli. Meira að segja Costco er ofurselt þessum sérreglum íslenzka fákeppnismarkaðarins.
    1
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Ekkert sem kemur óvart hér, maður býst orðið varla við að heiðarleiki þekkist í íslenskum viðskiptum
    5
  • ETK
    Eysteinn T. Kristinsson skrifaði
    Segir ýmislegt þegar samtök sem segist hafa þann tilgang að vernda hagsmuni félagsmanna er í raun að blóðmjólka þá. Hver er raunverulegur tilgangur KS?
    6
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Höft og undanþágur eru ávísun á sukk og spillingu. Umsvifalaust á að afnema allar hömlur á samkeppni með landbúnaðarvörur, enda væri það ein besta og skjótfengnasta kjarabót almennings í landinu, sem völ er á.
    6
  • Friðrik Helgason skrifaði
    Það er ekkert lát á sukkinu og svínaríinu á Skerinu.Þetta lið virðist aldrei,aldrei fá nóg og "Alþingi"hjálpar "Snillingunum"
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samkeppnisundanþága í Landbúnaði

FréttirSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Svör Íslands til ESA óljós - svör­uðu með hlekk á laga­safn þings­ins

Íslensk stjórn­völd svara því ekki með afger­andi hætti í svari til ESA hvort þau telji sam­keppn­isund­an­þágur sem alþingi sam­þykkti í vor, stand­ast EES-samn­ing­inn. Loðin og óskýr svör eru við flestum spurn­ingum ESA. Mat­væla­ráðu­neytið svar­aði spurn­ingum um harð­ort bréf sitt til Alþingis með því að senda ESA bréfið og hlekk á laga­safn þings­ins.
Skýring

KS kaupir Kjarna­fæði – Skag­firska efna­hags­svæðið orðið Norð­ur­land allt

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga mun ekki þurfa að bera kaup sín á Kjarna­fæði undir Norð­lenska Sam­keppn­is­eft­ir­litið, eftir að Alþingi und­an­skyldi fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum. KS fær yfir­burð­ar­stöðu á kjöt­mark­aði. Kjarna­fæði sam­ein­að­ist Norð­lenska fyrir tveimur árum með ströngum skil­yrðum, sem falla nú niður. Verðlaus hlutur þing­manns, sem harð­ast barð­ist fyrir sam­keppn­isund­an­þág­unum, í KN, er orð­inn millj­óna­virði.
ViðtalSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Formaður BÍ: Inn­flutn­ingur afurða­stöðva „ekki beint í sam­keppni við bændur“

Formaður Bænda­sam­tak­anna seg­ist treysta því að stór­fyr­ir­tækin í land­bún­aði muni skila bændum ávinn­ingi af nýjum und­an­þágum frá sam­keppn­is­lögum. Hann við­ur­kennir að litlar sem engar trygg­ingar séu þó fyrir því. Það hafi þó verið mat hans og nýrrar stjórnar að mæla með breyt­ing­unum.

14 mín. lestur

FréttirSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Treystir KS og SS til að skila ávinn­ingi til bænda

Nýkjör­inn for­maður Bænda­sam­tak­anna seg­ist bera fyllsta traust til þess að stór­fyr­ir­tæki í land­bún­aði skili bændum hag­ræð­ingu sem þau fá með umdeildum lögum. Hann sé ósam­mála mati yfir­lög­fræð­ings sam­tak­anna. Segir ekki sitt að meta aðkomu lög­manns fyr­ir­tækja að umdeildum lögum. Eðlilegt sé að skipt sé um fram­kvæmda­stjóra með breyttri stjórn.

Mest lesið undanfarið ár