Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“

Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir er rúm­lega þrí­tug og hefur aldrei fundið löngun til barn­eigna. Hún telur að inn í það spili ónógur stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur í íslensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í félags­fræði segir ástæð­urnar fyrir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flóknar en að kerfið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyldum, ekki síst mæðrum.

Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
Barnlaus Ingunn Lára hefur ekki úti­lokað mögu­leik­ann á barn­eignum en hefur aldrei, hvorki í lang­tíma­sam­bandi né utan þess, fundið löng­un­ina til þess að eign­ast barn. Mynd: Hörður Sveinsson

Fæð­ing­ar­tíðni hér­lendis hefur fallið nán­ast stöðugt síð­ast­lið­inn ára­tug – hrunið úr 1,9 börnum á konu í 1,59, en miðað er við að hver kona þurfi að eign­ast 2,1 barn á sínu ævi­skeiði til þess að við­halda mann­fjöld­anum. 

Nýbak­aðir for­eldrar segja að reynsla þeirra af kerf­inu hér á landi hafi orðið til þess að þeir hafa ákveð­ið að bíða með frek­ari barn­eign­ir, flytja til Skandi­nav­íu fyr­ir næsta barns­burð, eða hætta barn­eign­um al­gjör­lega. En sumir Íslend­ingar sjá ekki fyrir sér að eign­ast börn, alveg án þess að hafa per­sónu­lega reynslu af fæð­ing­ar­or­lofs­kerf­inu og umönn­un­ar­bil­inu. Meg­in­á­stæðan sem íslenskar konur í þeirri stöðu nefna er ein­fald­lega sú að þær langar það ekki.

„Tíminn líður, maður verður eldri og aldrei kemur þessi þrá sem margar eldri konur tala stundum um, „bíddu bara þar til þú verður eldri.“ Svo bíður maður og þessi til­finn­ing er ekki komin,“ segir Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir frétta­maður. Hún seg­ist …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tryggvi Hákonarson skrifaði
    Það þarf samfélags breytingu. Samfélagsmiðlar og sjónvörp eru að selja frelsi einstaklings þar sem engin börn eru í myndinni, það þarf að snúa aftur ójöfnuðinum á Íslandi, færa auðinn aftur til fólksins og stytta vinnuvikuna eða vinnustundir á dag. Gefa fólki meiri frítíma til að getað hugsað um börn og/eða sinnt sínum áhugamálum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kerfi sem bregst barnafjölskyldum

Klárar hvern einasta veikindadag í meðgönguveikindi
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Klárar hvern ein­asta veik­inda­dag í með­göngu­veik­indi

Fyrir tæpum 34 árum stóð Sigrún Jóns­dóttir í pontu á Alþingi og krafð­ist þess að ófrískar konur fengju svo­kallað með­göngu­or­lof við 36. viku með­göngu svo þær þyrftu ekki að ganga á veik­inda­rétt­inn sinn. Nú, 34 árum síðar, er dóttir Sigrúnar, Jóna Þórey Pét­urs­dóttir, einmitt í þeim sporum að klára veik­inda­rétt­inn sinn vegna veik­inda á með­göngu. Þegar hún kemur aftur á vinnu­markað eftir orlof mun hún ekki eiga neinn veik­inda­rétt inni.
Lögð inn á spítala eftir bréf frá Fæðingarorlofssjóði
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Lögð inn á spít­ala eftir bréf frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði

Íslenskir for­eldrar sem Heim­ildin hefur rætt við segja frá harka­legum köntum á kassa­laga kerfi sem fær þau til að hugsa sig tvisvar um frek­ari barn­eignir. Læknir og bráða­tæknir sem eign­uð­ust nýlega son voru bæði komin aftur út á vinnu­markað þremur mán­uðum eftir barns­burð. Um tíma leit út fyrir að móð­irin fengi ekki fæð­ing­ar­or­lof.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár