Sorpa greiðir ÍAV 26 milljónir króna í dráttarvexti

Stjórn Sorpu hefur sam­þykkt að ganga til sátta við verk­taka­fyr­ir­tækið ÍAV og greiða því vel á þriðja tug millj­óna í drátt­ar­vexti. Um er að ræða vexti vegna tæp­lega 90 millj­óna króna skaða­bóta sem Sorpu var með dómi gert að greiða ÍAV í tengslum við útboð á jarð­gerð­ar­stöð­inni Gaju.

Sorpa greiðir ÍAV 26 milljónir króna í dráttarvexti
GAJA Bygging gas- og jarð­gerð­ar­stöðv­ar­innar í Álfsnesi kost­aði mun meira en áformað var. Fram­leiðslan var svo menguð þung­málmum fyrst í stað. Mynd: Davíð Þór

Sorpa hefur nú greitt verk­taka­fyr­ir­tæk­inu ÍAV sam­tals rúm­lega 114 millj­ónir króna í skaða­bætur og vexti í tengslum við útboð á bygg­ingu gas- og jarð­gerð­ar­stöðv­ar­innar Gaju í Álfsnesi. ÍAV kom hvergi að þeirri bygg­ingu enda hreppti Ístak verkið. Það er einmitt sú ákvörðun og hvernig að henni var staðið sem varð til þess að ÍAV fór fram á skaða­bætur og fór með sigur af hólmi í bæði hér­aðs­dómi og Lands­rétti sem dæmdi Sorpu til að greiða fyr­ir­tæk­inu 88,5 millj­ónir króna. Kröfu ÍAV um drátt­ar­vexti var hins vegar vísað frá dómi en nú, tæp­lega ári seinna, hefur náðst sátt milli aðila um greiðslu 26 millj­óna króna í vexti.

Allt þetta mál snýst um útboð Sorpu á gas- og jarð­gerð­ar­stöð í Álfsnesi árið 2017. Fjögur til­boð bár­ust og voru þau opnuð í byrjun árs 2018. Tilboðin voru frá ÍAV, Ístaki, Munck og Mann­verki. ÍAV átti lægsta til­boðið en öll voru þau yfir við­mið­un­ar­mörkum Sorpu. Í lok febr­úar þetta ár var öllum til­boðum hafnað. Sorpa sagð­ist þá hafa end­ur­skil­greint verk­efnið með það að mark­miði að leita leiða til að draga úr kostn­aði og að þeim sem upp­haf­lega skil­uðu til­boði hafi verið boðið að taka þátt í samn­ings­kaupum um verk­efnið.

Um miðjan apríl voru til­boð opnuð á ný og þá bauð Ístak lægst. Og gengið var til samn­inga við það fyr­ir­tæki við bygg­ingu jarð­gerð­ar­stöðv­ar­innar sem seinna hlaut nafnið GAJA.

Við þetta felldi ÍAV sig ekki og höfð­aði mál á hendur Sorpu, taldi sig hafa upp­lýs­ingar um að mót­bjóð­and­inn hefði lagt fram frá­vikstil­boð sem gengi í ber­högg við lög um jafn­ræði bjóð­enda og gagn­sæi við inn­kaup.

Misvísandi skilmálar

Í dómi Lands­réttar, sem kveð­inn var upp síð­asta haust, kemur fram að skil­mál­arnir sem giltu um samn­ings­ferlið hefðu verið mis­vísandi og til þess fallnir að valda mis­skiln­ingi um að hvaða marki þeim væri heim­ilt að víkja frá skil­málum samn­ings­kaupanna með frá­vikum og und­an­þágum. Þannig hafi fyr­ir­tæk­inu sem hafði betur í útboð­inu, þ.e. Ístaki, talið það heim­ilt en ekki ÍAV.

„Í kjöl­far þess að Hæsti­réttur hafn­aði beiðni Sorpu um áfrýj­un­ar­leyfi var krafan greidd“
Gunnar Dofri Ólafsson,
sam­skipta- og þró­un­ar­stjóri Sorpu.

Í ljósi óskýr­leika skil­mála útboðs­ins taldi Lands­réttur að fyr­ir­tæk­in tvö hafi ekki setið við sama borð. Af þeim sök­um voru til­boðin ekki sam­an­b­urðar­hæf og byggð á mis­mun­andi for­send­um. Það hafi valdið ÍAV bóta­skyldu tjóni sem metið var á rúm­ar 88,5 millj­ón­ir króna.

Bótakrafa ÍAV hljóð­aði upp á um 180 millj­ónir króna, sem var áætl­aður hagn­aður af verk­inu, en dóm­stóll­inn féllst ekki á þann útreikn­ing sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi gögnum og lækk­aði upp­hæð­ina um helm­ing.

Gengið til samninga við ÍAV

Á fundi stjórnar Sorpu í byrjun júlí var tekið fyrir minn­is­blað, unnið af lög­mönnum, þar sem lagt var til að ganga til sátta við ÍAV um greiðslu vaxta. Aðdrag­andi þessa er sá að kröfu ÍAV um drátt­ar­vexti vegna skaða­bót­anna var vísað frá dómi. „Í kjöl­far þess að Hæsti­réttur hafn­aði beiðni Sorpu um áfrýj­un­ar­leyfi var krafan greidd,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sam­skipta- og þró­un­ar­stjóri Sorpu í skrif­legu svari til Heim­ild­ar­innar um málið. Í kjöl­farið hófust við­ræður aðila um vaxta­kröfu ÍAV sem lykt­uðu með því að stjórn Sorpu sam­þykkti ein­róma að greiða vexti, sam­tals 26 millj­ónir króna, með ein­greiðslu.

Minn­is­blaðið fæst hins vegar ekki afhent þar sem það var ritað í tengslum við dóms­mál og er því bundið trún­aði, að sögn Gunnars Dofra.

Langt fram úr áætlunum

Kostn­aður við bygg­ingu gas- og jarð­gerð­ar­stöðv­ar­innar Gaju fór veru­lega fram úr öllum áætl­unum. Hann átti að vera um 3,7 millj­arða en árið 2021 var hann kom­inn upp í 6,2 millj­arða. Þessi mikla fram­úr­keyrsla varð til þess að samið var um starfs­lok þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Sorpu.   

Fram­leiðsla Gaju fór svo einnig brös­ug­lega af stað en líkt og Stundin greindi frá haustið 2021 var allt að tutt­ugu sinnum meira magn þung­málma í moltu þeirri sem stöðin fram­leiddi en staðlar sögðu til um. Vorið þetta ár hafði komið í ljós að moltan var plast­menguð.

Nú í vor var fram­leiðslan komin í gott horf, enda líf­rænn úrgangur sem höf­uð­borg­ar­búar hafa vandað sig við að flokka síð­ustu miss­eri, not­aður til fram­leiðsl­unnar.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár