Mynd: Davíð Þór

Molta úr sex milljarða verksmiðju Sorpu of mikið menguð af þungmálmum

Allt að tutt­ugu sinnum meira magn þung­málma er í moltu frá Sorpu en staðlar segja um. Ætluðu að dreifa molt­unni um íslenska nátt­úru. End­ur­vinnslu­hlut­fall Íslend­inga er langt undir við­miðum.

Samkvæmt eigin mæl­ingum Sorpu kemur fram að magn þung­málma í moltu sem fram­leidd er í Gas- og jarð­gerð­ar­stöð­inni GAJA er langt yfir mörkum, bæði sam­kvæmt við­miðum frá Bret­landi og Evr­ópu­sam­band­inu. Bygging verk­smiðj­unnar hefur kostað um 6 millj­arða króna, en sam­kvæmt kostn­að­ar­á­ætlun frá 2016 var áætl­aður kostn­aður um 2,8 millj­arðar. Stundin greindi frá því í síð­asta tölu­blaði að moltan sem Sorpa fram­leiddi væri plast­menguð og stæð­ist þar af leið­andi ekki kröfur. Var plast­meng­unin svo mikil að hefðu áætl­anir Sorpu gengið eftir og molt­unni hefði verið dreift, hefði um 200 tonnum af plasti verið dreift um íslenska nátt­úru.

Hættulegir þungmálmar langt yfir mörkum

Efna­mæl­ingar sem Sorpa hefur birt sýna að moltan sem byggða­sam­lagið fram­leiðir er mikið menguð af þung­málmum og magn blýs, kadmíums, sinks og nikk­els langt yfir leyfi­legum mörkum.

Blý er einn þeirra málma sem er hættu­leg­astur umhverf­inu og mann­fólki. Samkvæmt tölum Sorpu er magn af blýi í molt­unni sem þeir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár