Mynd: Golli

„Enginn sem tekur við af mér“

Það er barn­ingur fyrir marga að vera sjálf­stætt for­eldri á einum tekjum. En hver er staðan ef for­eldrið er alfarið eitt með barnið? Hvað ef barnið glímir við sér­tækar grein­ingar? Alma Hrönn Hrann­ar­dóttir og Diljá Ámunda­dóttir Zoëga eru báðar einar á vakt­inni, alltaf. Mæðurnar hafa glímt við heilsu­brest vegna álags, með­vit­aðar um að ef eitt­hvað kemur fyrir þær er eng­inn sem tekur við af þeim.

 Diljá er með þrjár háskóla­gráður og Alma Hrönn tvær. Báðar búa þær í eigin hús­næði. Á papp­írnum til­heyra þær milli­stétt á Íslandi. 

Þær eiga það sam­eig­in­legt að vera einar á for­eldra­vakt­inni alla daga og axla ábyrgð­ina einar. Fyrr­nefnd á dóttur með Down syndrome og síð­ar­nefnd dóttur með ein­hverfu. Báðar hafa staðið frammi fyrir heilsu­bresti sem rekja má til álags – um leið og allt stendur og fellur með þeim einum. Líka að það sé matur á borðum í lok mán­aðar. 

 Álagsveikindi kosta samfélagið

Í nútíma­lífi vinna margir sjálf­stætt og þá án sjálf­krafa rétt­inda. Eins þurfa margir að vera í fleiri en einni vinnu eða taka að sér auka­verk­efni. Diljá hefur reynslu af hvort tveggja en hún kveðst miklu sjaldnar hafa verið bara í einni vinnu en hitt á starfsævi sinni. 

„Lengi vel var ég í svona fjórum störfum. Ég skildi ekki stundum af hverju ég var …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár