Mynd: Golli

Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína

Guðlaug Elísabet Ólafs­dóttir, kúa­bóndi og leik­kona, er orðin goði. Nýi goð­inn hefur upp­lifað gleði og sorgir og varð lífið hel­víti lík­ast þegar hún fékk ekki að umgang­ast barn­unga dóttur sína, sem frændi hennar og maður hans höfðu ætt­leitt. Stúlkan vildi fyrir nokkrum árum hitta móður sína og eru sam­skiptin við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að umgang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“

Guðlaug Elísabet Ólafs­dóttir, kúa­bóndi og leik­kona, var vígð sem goði á eftir Önnu. Hún stóð jafn­glæsi­leg og Anna við kletta­veg­inn klædd í sér­saum­aðan hör- og ull­ar­fatnað og með höf­uð­búnað. Hún hélt á bók með texta í til að lesa tryggða­málin og missti hana. „Fall er far­ar­heill,“ hugs­aði blaða­maður. En hvernig brást Guðlaug við? „Ég hugs­aði: „Frábært!“ Mig lang­aði svo að gera þetta fal­legt og full­kom­lega en svo bara: Come on!“ Allt gekk vel og fal­leg athöfnin hélt áfram og í kvöldsól­inni hélt svo fólk í Ása­trú­ar­fé­lag­inu og gestir að tjaldi þar sem boðið var upp á grill.

Guðlaug Elísabet fermd­ist á sínum tíma en hún seg­ist ekki hafa viljað ferm­ast. „Mér var hins vegar gert það alveg ljóst að það væri ekk­ert annað í boði. Ég lét þetta yfir mig ganga.“

Hún segir að sér hafi lengi fund­ist ása­trúin vera for­vitni­leg, sjálf­sagt síðan á mennta­skóla­ár­unum. Þá var …

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingunn Einarsdóttir skrifaði
    Tanngrisnir og tanngnjóstur draga vagn Þórs, ekki Óðins.
    3
    • BG
      Benedikt Garðarsson skrifaði
      Ég hugsa að Guðlaug hafi mismælt sig, er það ekki?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár