Mynd: Heiða Helgadóttir

Það eru allir að segja að við séum flottustu hjónin

Þau eru ung og ást­fangin. Giftu sig í fyrra­haust og fóru í lok maí í brúð­kaups­ferð til Viln­í­usar. Rúna Ösp Unn­steins­dóttir er með Downs-heil­kenni. Eig­in­maður hennar, Einar Marteinn Berg­þórs­son, er greindur með ADHD án ofvirkni. Þau elska að ferð­ast og dreymir um að eign­ast barn.

Ungu hjónin Rúna Ösp Unn­steins­dóttir og Einar Marteinn Berg­þórs­son búa í Stykk­is­hólmi; ævin­týra­bænum við Breiða­fjörð þar sem eyj­arnar eru sagðar vera ótelj­andi.

„Ég fædd­ist á Akranesi,“ segir Rúna Ösp, „og átti mjög erf­iða tíma. Ég fékk hvít­blæði þegar ég var fjög­urra ára og ég er búin að ganga í gegnum krabba­mein. For­eldrar mínir áttu mjög erf­iðar stundir og ég sigr­að­ist á því öllu sem lítið fjög­urra ára barn.

Það voru ekki margir sem voru svona sterkir og hraustir eins og ég; sem þola ekki miklar nálar. Ég var sú eina sem var ekk­ert hrædd við þetta allt.“

Svo liðu árin.

„Það var pínu erfitt þegar ég byrj­aði í grunn­skóla í Grund­ar­firði. Margir lögðu mig í ein­elti. En svo gekk þetta upp hjá mér og þá fóru allir að leika við mig, sér­stak­lega bekkj­ar­systkin mín.“

Langar í barnRúna er ham­ingju­söm og …
Kjósa
60
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Líf með Downs

„Ég safna grafskriftum“
ViðtalLíf með Downs

„Ég safna graf­skriftum“

Flestir Kefl­vík­ingar þekkja Davíð Má Guð­munds­son sem er 41 árs bor­inn og barn­fæddur Kefl­vík­ingur. Bróðir Davíðs segir hann með vin­sælli mönnum í Reykja­nesbæ og að bæj­ar­búar stoppi til að spjalla við hann þegar hann er á ferð­inni. Davíð er mik­ill safn­ari og safnar til að mynda laga­textum, krossum og graf­skriftum. Hann er söng­elskur og hefur tekið lagið með MC Gauta og Sölku Sól.
„Frábært að lifa lífinu eins og maður er“
ViðtalLíf með Downs

„Frábært að lifa líf­inu eins og maður er“

Katla Sif Ægis­dóttir hlaut gull­verð­laun í 50 metra skrið­sundi á Special Olympics í sumar. Katla Sif, sem er 23 ára, býr hjá for­eldrum sínum en stefnir á að fara í sjálf­stæða búsetu með vin­konu sinni fljót­lega. Henni finnst „dálítið hræði­legt“ að fóstrum sé eytt ef líkur eru taldar á Downs- heil­kenni hjá barn­inu og hefur hún upp­lifað for­dóma á eigin skinni.
„Mikilvægast er að hann fær að vera með“
ViðtalLíf með Downs

„Mik­il­væg­ast er að hann fær að vera með“

Sólný Páls­dóttir segir ekki hafa hvarflað að henni þegar Hilmir Sveins­son sonur hennar lá fyrir tólf árum í hita­kassa á Land­spít­al­anum að hann ætti eftir að verða fót­bolta- og körf­bolta­strákur. Hún segir mik­il­vægt að Hilmir hafi alltaf fengið að vera með í íþrótta­starf­inu í heimabæ þeirra, Grinda­vík og í gegnum íþrótt­irnar hafi hann eign­ast trausta vini.
„Fólk með Downs heilkenni getur lifað innihaldsríku lífi“
FréttirLíf með Downs

„Fólk með Downs heil­kenni getur lifað inni­halds­ríku lífi“

Fyrr á þessu ári var talið að síð­asta barnið með Downs-heil­kenni væri fætt á Íslandi en þá hafði ekk­ert barn með heil­kennið fæðst í rúm tvö ár. Síðan þá hafa hins vegar tvær stúlkur fæðst með Downs-heil­kenni. Sér­fræð­ingar segja þrýst á verð­andi mæður að fara í skimanir á með­göngu og að rang­hug­myndir ríki um líf með auka­litn­ing­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár