„Mjög gott samráð“ milli ráðuneyta en töldu ekki ástæðu til að láta Norðurlöndin vita

Alvar­legar ásak­anir á hendur Braga Guð­brands­syni eru enn í rann­sókn­ar­far­vegi innan ráðu­neyt­is­ins sam­hliða Norð­ur­landa­fram­boði hans til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Samkvæmt svörum frá Finnum og Svíum er ljóst að þar stóð utan­rík­is­þjón­ustan í þeirri trú, rétt eins og þing­menn á Íslandi, að gera ætti úttekt á öllu barna­vernd­ar­kerf­inu þar sem rýnt yrði í vinnu­brögð Braga.

„Mjög gott samráð“ milli ráðuneyta en töldu ekki ástæðu til að láta Norðurlöndin vita

Íslensk stjórn­völd greindu ekki stjórn­völdum hinna Norð­ur­land­anna frá því að hætt hefði verið við að gera alls­herj­ar­út­tekt á vinnu­brögðum Barna­vernd­ar­stofu og barna­vernd­ar­nefnda í til­teknum barna­vernd­ar­málum vegna kvart­ana gegn Braga Guð­brands­syni og Norð­ur­landa­fram­boðs hans til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þetta má ráða af svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Mál Braga Guð­brands­sonar eru enn í rann­sókn­ar­far­vegi innan vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins eftir að ljóst varð að ráðu­neytið van­rækti rann­sókn­ar­skyldu sína við fyrri athugun og mistókst að leiða fram stað­reyndir þegar barna­vernd­ar­nefndir kvört­uðu undan ítrek­uðum óform­legum afskiptum Braga af ein­stökum barna­vernd­ar­málum. 

Í frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þann 2. maí síð­ast­lið­inn kom fram að óháðum sér­fræð­ingum hefði verið falið að vinna úttekt á „til­teknum málum á sviði barna­verndar“ og að gera athugun á „máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda, þ.e. þeirra barna­vernd­ar­nefnda sem tengj­ast við­kom­andi málum, Barna­vernd­ar­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neytis“.

Tilefni úttekt­ar­innar var hávær umræða á Alþingi og í fjöl­miðlum eftir að Stundin hafði greint með ítar­legum hætti frá afskiptum Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði þar sem Bragi hafði beitt sér fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að fað­ir­inn hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega. Eins og úttektin stað­festir byggði umfjöllun Stund­ar­innar á einu skráðu sam­tíma­gögn­unum sem til eru um afskipti Braga af umræddu máli.

Velferðarnefnd þagnaði

Til­kynn­ingin um úttekt­ina varð til þess að vel­ferð­ar­nefnd Alþingis hætti umfjöllun um mál Braga og Ásmundar Einars Daða­sonar ráð­herra auk þess sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hélt að sér höndum. Þá greindu utan­rík­is­ráðu­neyti Norð­ur­land­anna frá því í svörum til Stund­ar­innar að þau fylgd­ust með mál­inu.

Samkvæmt svörum frá Finnum og Svíum er ljóst að þar stóð utan­rík­is­þjón­ustan í þeirri trú, rétt eins og þing­menn á Íslandi, að rík­is­stjórn Íslands hefði látið gera úttekt sem tæki til íslenska barna­vernd­ar­kerf­is­ins í heild og stjórn­sýslu Barna­vernd­ar­stofu og Braga Guð­brands­sonar. „Okkur er kunn­ugt um að nú stendur yfir óháð athugun á máls­með­ferð innan barna­vernd­ar­kerf­is­ins,“ sagði t.d. upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neytis Finn­lands í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. „Við höldum áfram að styðja fram­bjóð­and­ann nema nið­ur­stöður athug­un­ar­innar gefi til­efni til ann­ars.“ 

Síðar kom þó í ljós að þrátt fyrir að til­kynnt væri um úttekt­ina sem „óháða úttekt“ á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins ann­að­ist vel­ferð­ar­ráðu­neytið verk­samn­ings­gerð við úttekt­ar­að­ila og bar ábyrgð á fram­kvæmd­inni. Við verk­samn­ings­gerð­ina var hlut­verk úttekt­ar­nefnd­ar­innar þrengt án þess að greint væri frá því opin­ber­lega og ákveðið að úttektin skyldi aðeins taka til hluta þess sem for­sæt­is­ráðu­neytið nefndi í upp­hafi, einkum og sér í lagi til máls­með­ferðar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og hvernig ráðu­neytið með­höndl­aði kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda. Þannig var úttekt­ar­nefnd­inni ekki falið að leggja heild­stætt mat á vinnu­brögð Braga Guð­brands­sonar eða stjórn­sýslu Barna­vernd­ar­stofu og barna­vernd­ar­nefnda í ein­stökum barna­vernd­ar­málum eins og gefið hafði verið til kynna að gert yrði.

Svo tekið sé dæmi kemur fram í úttekt­inni að Barna­vernd­ar­stofa hafi, að frum­kvæði Braga, haldið sér­stakan fund um mál­efni stúlkn­anna í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu þar sem ákveðið var að þær færu ekki í könn­un­ar­við­tal í Barna­húsi þrátt fyrir beiðni barna­vernd­ar­nefndar þar um, en ritað fund­ar­gerð um fund­inn 10 mán­uðum síðar án þess að senda þeim sem við­staddir voru fund­inn fund­ar­gerð­ina til stað­fest­ingar. Engin efn­is­leg afstaða er tekin til þess­arar óvenju­legu stjórn­sýslu í úttekt­inni, enda er með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnd­anna meg­in­við­fangs­efni úttekt­ar­innar sam­kvæmt verk­samn­ingi. 

Ekki rætt um framboð Braga á ríkisstjórnarfundinum

„Mjög gott sam­ráð var á milli for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og vel­ferð­ar­ráðu­neytis við und­ir­bún­ing hinnar óháðu úttektar,“ segir í svari Láru Bjargar Björns­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. „Endanleg afmörkun verk­efn­is­ins byggð­ist á mati þeirra sér­fræð­inga sem stýrðu hinni óháðu úttekt m.a. m.t.t. til gild­andi stjórn­skip­unar og stjórn­sýslu hér á landi og gefur sú afmörkun ekki til­efni til þess að sér­stak­lega sé haft sam­band við Norð­ur­löndin.“

Bragi Guð­brands­son full­yrti í við­tali á Mbl.is þann 8. júní síð­ast­lið­inn að rík­is­stjórn Íslands hefði ákveðið á fundi þann dag „að málið myndi ekki hafa nokk­ur áhrif á fram­boð hans [til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna“.

Stundin spurði for­sæt­is­ráðu­neytið hvort þetta væri rétt og fékk eft­ir­far­andi svar frá skrif­stofu­stjóra yfir­stjórnar: „Eins og fram kemur á birtri dag­skrá rík­is­stjórn­ar­fundar, 8. júní sl., var fjallað um nið­ur­stöðu hinnar óháðu úttektar á fundi rík­is­stjórn­ar­innar þann dag.  Hins vegar var fjallað um fram­boð Braga Guð­brands­sonar, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, til setu í nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barna fyrir tíma­bilið 2019-2022 á fundi rík­is­stjórn­ar­innar þann 23. febr­úar sl., þar sem rík­is­stjórnin sam­þykkti að bjóða hann fram sem full­trúa Íslands og þeirri ákvörðun hefur ekki verið breytt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár