Ásmundur sagði ríkisstjórninni ekki frá því að Bragi hefði verið snupraður fyrir að að fara út fyrir valdsvið sitt

„Ég ber fullt traust til Ásmundar Einars Daða­sonar,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Ásmundur sagði ríkisstjórninni ekki frá því að Bragi hefði verið snupraður fyrir að að fara út fyrir valdsvið sitt

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, upp­lýsti ekki rík­is­stjórn­ina um að Bragi Guð­brands­son hefði farið út fyrir vald­svið sitt með afskiptum af barna­vernd­ar­máli þar sem meint kyn­ferð­is­brot voru til skoð­unar áður en rík­is­stjórnin sam­þykkti að bjóða Braga fram til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn. 

Þá greindi Ásmundur Einar heldur ekki frá því að Bragi hefði fengið sér­stök til­mæli vegna afskipt­anna sem hann hafði af störfum Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar í sam­ráði við föð­ur­fjöl­skyldu tveggja stúlkna sem barna­vernd­ar­nefnd hafði skömmu áður vísað til Barna­húss vegna meintra kyn­ferð­is­brota föð­ur­ins. Upp­lýs­ingar um til­mælin til Braga komu fyrst fram í Kast­ljósi í síð­ustu viku. „Þessi nið­ur­staða og þessi sömu til­mæli sem þú vitnar til voru send á aðila máls­ins við lok afgreiðslu þess,“ sagði Ásmundur Einar í við­tal­inu.

Stundin sendi Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra fyr­ir­spurn um málið í síð­ustu viku. Spurt var hvort rík­is­stjórnin hefði verið upp­lýst um það á fund­inum 23. febr­úar, áður en ákveðið var að bjóða Braga Guð­brands­son fram til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, að Bragi hefði að mati vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins farið út fyrir starfs­svið sitt með óeðli­legum afskiptum af barna­vernd­ar­máli og fengið til­mæli frá ráð­herra vegna þeirra.

Í svar­inu er bent á að engin gögn voru lögð fram á rík­is­stjórn­ar­fund­inum þann 23. febr­úar um ein­stök mál tengd Braga Guð­brands­syni. „Á þeim fundi kom fram í munn­legri frá­sögn ráð­herr­ans að ráðu­neytið hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hefði ekki gerst brot­legur í starfi en ljóst væri að sam­skipti milli Barna­vernd­ar­stofu og ein­stakra barna­vernd­ar­nefnda væru á gráu svæði,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir.

Aðspurð hvort hún og rík­is­stjórnin hafi fengið upp­lýs­ingar um að Bragi hefði farið út fyrir starfs­svið sitt og fengið til­mæli vegna þess á föstu­dag, eftir að umfjöllun Stund­ar­innar birt­ist, segir Katrín:

„Ég ræddi við félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra eftir að umfjöllun Stund­ar­innar birt­ist og fórum við yfir málið, meðal ann­ars þau svör sem send voru for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu og til­efni þeirra. Sökum þeirrar umræðu sem orðið hefur um þetta mál, sem og önnur mál á borði barna­vernd­ar­nefnda, Barna­vernd­ar­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neytis, og mik­il­vægis þess að þau séu hafin yfir allan vafa, óskaði félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra eftir því við mig að óháð úttekt yrði gerð á mál­unum. Nið­ur­staðan var að fá sér­fræð­ing­ana, Kjartan Bjarna Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ara og Kristínu Bene­dikts­dóttur, dós­ent, til að gera óháða úttekt á máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda í þessum málum.“

Að lokum var spurt hvort for­sæt­is­ráð­herra bæri enn traust til Ásmundar Einars Daða­sonar. „Já, ég ber fullt traust til Ásmundar Einars Daða­sonar,“ segir for­sæt­is­ráð­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár