Hélt því leyndu fyrir Alþingi að Bragi hefði „farið út fyrir starfssvið sitt“

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi Guð­brands­son hefði farið út fyrir starfs­svið sitt þegar hann beitti sér fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að hann hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega.

Hélt því leyndu fyrir Alþingi að Bragi hefði „farið út fyrir starfssvið sitt“

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hélt því leyndu fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis þann 28. febr­úar að skrif­stofa félags­þjón­ustu í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu fyrr í mán­uð­inum að Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hefði farið út fyrir starfs­svið sitt með afskiptum af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði sem Stundin fjall­aði um á föstu­dag­inn. 

Kastljós greindi frá nið­ur­stöðu umrædds minn­is­blaðs í við­tali við Ásmund Einar Daðason í kvöld en hingað til hefur algjör leynd hvílt yfir efni þess.

Ásmundur við­ur­kenndi á fundi vel­ferða­nefndar í morgun að í kjöl­far rann­sóknar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda hefðu verið send „til­mæli til aðila máls­ins“ um að þeir gættu þess að starfs­menn Barna­vernd­ar­stofu og barna­vernd­ar­nefnda færu ekki út fyrir sín svið í ein­stökum málum.

Þetta við­ur­kenndi ráð­herra þó ekki fyrr en eftir að Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, hafði gengið á eftir honum með þá spurn­ingu hvort ein­hver hefði fengið til­mæli vegna máls­ins og brýnt fyrir ráð­herra að greina satt og rétt frá.

Það var ekki fyrr en nú í Kast­ljósi sem í ljós kom að Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, fékk til­mæli frá ráðu­neyt­inu eftir að skrif­stofa félags­þjón­ustu komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði farið út fyrir starfs­svið sitt. Um er að ræða minn­is­blað frá 6. febr­úar 2018, en í umsögn sem ráðu­neytið sendi úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál vegna kæru Stund­ar­innar á synjun upp­lýs­inga­beiðni um minn­is­blöð er varða kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda kemur fram að minn­is­blaðið frá 6. febr­úar fjalli um Hafn­ar­fjarð­ar­málið.

Tilefni opna fund­ar­ins fund­ar­ins í morgun var for­síðu­um­fjöllun Stund­ar­innar frá því á föstu­dag þar sem greint var frá því að Bragi hefði, í sam­ráði við föður máls­að­ila í barna­vernd­ar­máli, beitt sér fyrir því að maður, sem barna­vernd­ar­nefnd og með­ferð­ar­að­ili ótt­uð­ust að hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn dætrum sínum, fengi að umgang­ast þær.

Fram kom í umfjöllun Stund­ar­innar að aðstoð­ar­maður Ásmundar auk lög­fræð­ings og skrif­stofu­stjóra í vel­ferðar- ráðu­neyt­inu, hefði tekið við gögnum um málið – sím­tals­lýs­ingu og tölvu­pósts­sam­skiptum sem Stundin birti í dag – fyrir hönd ráð­herra á fundi þann 31. jan­úar 2018.

Þannig hefði Ásmundi Einari mátt vera kunn­ugt um eðli afskipta Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli áður en hann mætti á fund vel­ferð­ar­nefndar þann 28. febr­úar en látið hjá líða að greina nefnd­ar­mönnum frá því sem hann vissi. 

Eftir opna fund­inn í morgun og upp­lýs­ing­arnar sem fram komu í Kast­ljós­svið­tal­inu í kvöld liggur fyrir að á fundi  vel­ferð­ar­nefndar þann 28. febr­úar hélt Ásmundur Einar því leyndu fyrir vel­ferð­ar­nefnd – þeirri þing­nefnd sem hefur eft­ir­lit með emb­ætt­is­færslum hans – að með afskiptum sínum af hinu við­kvæma barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði hefði Bragi Guð­brands­son farið út fyrir starfs­svið sitt að mati ráðu­neyt­is­ins. 

Einar Þor­steins­son, spyrill í Kast­ljósi, lýsti minn­is­blað­inu frá skrif­stofu félags­þjón­ustu til ráð­herra með eft­ir­far­andi hætti í kvöld:

„Nið­ur­staðan er að for­stjóri hafi ekki gerst brot­legur við lög en við rann­sókn máls­ins hafi komið fram að hann hafi farið út fyrir starfs­svið sitt og er ráð­herra hvattur til að senda for­stjóra bréf með til­mælum um að gera það ekki aftur.“

Aðspurður hvort slík til­mæli hefðu verið send sagði ráð­herra: „Þessi nið­ur­staða og þessi sömu til­mæli sem þú vitnar til voru send á aðila máls­ins við lok afgreiðslu þess.“ Af ráð­herra mátti skilja að efni til­mæl­anna væri í anda nið­ur­stöðu minn­is­blaðs­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár