„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.

„Eins og svo oft með öfluga stjórnmálamenn sem hefur einnig verið ákveðin persónudýrkum í kringum, eins og Katrínu, þá molnar hressilega undan þessu þegar hún hverfur af vettvangi því það var svo bundið hennar persónu að halda þessu saman,“ segir Drífa Snædal.
„Eins og svo oft með öfl­uga stjórn­mála­menn sem hefur einnig verið ákveðin per­sónu­dýrkum í kringum, eins og Katrínu, þá molnar hressi­lega undan þessu þegar hún hverfur af vett­vangi því það var svo bundið hennar per­sónu að halda þessu saman,“ segir Drífa Snædal. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ein eft­ir­minni­leg­asta úrsögn úr Vinstri­hreyf­ing­unni grænu fram­boði var þegar Drífa Snædal sagði sig úr hreyf­ing­unni árið 2017 en þá voru rík­is­stjórn­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Framsókn í fullum gangi. Hún er í dag tals­kona Stíga­móta en var á sínum tíma fram­kvæmda­stjóri VG og vara­þing­maður , en hún hafði þarna verið í flokknum frá upp­hafi, í 18 ár. 

Drífa sagð­ist vera bæði döpur og reið yfir því að flokk­ur­inn hafi farið í form­legar við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn; „Við munum ekki breyta Sjálf­stæð­is­flokknum. Innviðir hans eru spilltir og fullir kven­fyr­ir­litn­ingar og að halda að við breytum honum er með­virkni í hæsta máta.“

Og enn fremur: „Við og við vellur gröft­ur­inn upp í formi frænd­hygli, inn­herj­a­við­skipta, skatta­skjóla, auð­valds­dek­urs, útlend­inga­andúðar eða skjald­borgar um ofbeld­is­menn. Þá verður VG í þeirri stöðu að verja sam­starfs­flokk­inn og mörkin munu sífellt fær­ast til í sam­starf­inu líkt og í ofbeld­is­sam­bandi. Þetta verður eins og að éta skít í heilt …

Kjósa
112
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Loksins einhver sem sér í gegnum Katrínu. „Fyr­ir vinstr­ið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa af­leið­ing­ar fyr­ir flokk að miðla mál­um svo hressi­lega að það er ekk­ert eft­ir af hug­sjón­un­um,“ seg­ir Drífa. Sjálfskaparvíti og svik Katrínar við vinstri fólk.
    12
    • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
      Sósíalistaflokkurinn er eina vonin. Hann er ekki nefndur.
      8
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Það sem er sérlega eftirtektarvert hér er að hvorki fréttamaður né Drífa Snædal minnast einu orði á Sósíalistaflokkinn sem valkost fyrir vinstrið; láta eins og hann sé ekki til. Hverju sætir?
    8
    • BK
      Bjarni Kristjánsson skrifaði
      Gunnar Smári fékk ótrúleg tækifæri í heimi viðskiptanna og naut sín vel í því umhverfi. Allt klúðraðist og viðskipta elítan afskrifaði hann.
      Hann snéri þá blaðinu við, ákvað að gera út á þá verst settu, og stofnaði Sósíalistaflokkinn.
      Þetta sjá flestir í gegnum. Sósíalistaflokkurinn hefur engan trúverðugleika og það er eflaust ástæðan fyrir því að hann er ekki nefndur í viðtalinu.
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár