„Formaður velferðarnefndar minnir ráðherra á að greina satt og rétt frá“

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra sagði að til­mælum hefði verið beint til aðila barna­vernd­ar­mála um að halda sig innan sinna sviða. Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, áminnti ráð­herra um sann­sögli.

„Formaður velferðarnefndar minnir ráðherra á að greina satt og rétt frá“
Telur ráð­herra ekki hafa lagt fram öll gögn Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, telur að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hafi ekki látið nefnd­inni í té öll gögn sem fyrir lágu í máli Braga Guð­brands­sonar þegar ráð­herra mætti á fund nefnd­ar­innar 28. febr­úar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra við­ur­kenndi á fundi vel­ferða­nefndar í morgun að í kjöl­far rann­sóknar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum þriggja barna­vernd­ar­nefnda á hendur Braga Guð­brands­syni, þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, hefðu verið send til­mæli til aðila máls­ins um að þeir gættu þess að starfs­menn Barna­vernd­ar­stofu og barna­vernd­ar­nefnda færu ekki út fyrir sín svið í ein­stökum málum. Það gerð­ist þó ekki fyrr en eftir að Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, brýndi fyrir Ásmundi Einari að greina satt og rétt frá.

Í við­tali við Stundina eftir fund­inn sagði Halldóra að það væri enn hennar skoðun að ráð­herra hefði ekki lagt fram mik­il­væg gögn sem lágu fyrir í mál­inu á fundi nefnd­ar­innar 28. febr­úar síð­ast­lið­inn og að það væru óásætt­an­leg vinnu­brögð.

Ásmundur Einar mætti á opinn fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis nú í morgun og sat fyrir svörum um emb­ætt­is­færslur sínar í máli Braga Guð­brands­sonar en til­efni fund­ar­ins var for­síðu­um­fjöllun Stund­ar­innar frá því á föstu­dag­inn. Þar var greint frá því að Bragi hefði, í sam­ráði við föður máls­að­ila í barna­vernd­ar­máli, beitt sér fyrir því að faðir, sem barna­vernd­ar­nefnd og með­ferð­ar­að­ili ótt­uð­ust að hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn dætrum sínum, fengi að umgang­ast þær. Þá kom fram í umfjöllun Stund­ar­innar að aðstoð­ar­maður Ásmundar, lög­fræð­ingur og skrif­stofu­stjóri hefðu tekið við gögnum um málið, sím­tals­lýs­ingu og tölvu­pósts­sam­skiptum sem Stundin birti í dag, fyrir hönd ráð­herra á fundi þann 31. jan­úar 2018. Þannig hefði Ásmundi Einari mátt vera kunn­ugt um eðli afskipta Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli áður en hann mætti á fund vel­ferð­ar­nefndar þann 28. febr­úar en látið hjá líða að greina nefnd­ar­mönnum frá því sem hann vissi.

Svaraði ekki hvort tilmælum hefði verið beint til Braga sjálfs

Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, yfir­heyrði Ásmund Einar Daðason félags­mála­ráð­herra um málið á fund­inum og gekk hart eftir því hvort ráð­herra teldi þau afskipti sem Bragi hafði af því máli sem fjallað hefur verið um í Stund­inni stand­ast lög og skyldur Braga sem opin­bers starfs­manns.

Ásmundur Einar svar­aði því einu til að nið­ur­staða vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins hefði verið sú að Bragi hefði ekki brotið af sér í starf. Upptöku af spurn­ingum Halldóru og svörum Ásmundar Einars má sjá hér að ofan og útskrift á sam­tal­inu neðst í frétt­inni.

Þá spurði Halldóra ítrekað að því hvort nið­ur­staða rann­sóknar ráðu­neyt­is­ins hefði orðið til­efni til þess að beina ein­hverjum til­mælum þaðan til Braga Guð­brands­sonar.

Því svar­aði Ásmundur Einar ekki fyrr en Halldóra hafði áminnt hann um að segja satt og rétt frá. Þá svar­aði Ásmundur því til að til­mælum hefði verið beint til aðila máls að halda sig innan sinna verk­sviða í störfum. Hann svar­aði því þó ekki beint hvort þar hefði verið um Braga sjálfan að ræða.

 „Svo þurfum við að skoða það hvort að við eigum að beita okkur fyrir því að til­nefn­ing Braga verði dregin til baka.“

Segir vinnubrögð ráðherra óásættanleg

Stundin ræddi við Halldóru að loknum fund­inum og sagði hún að hann hefði að ein­hverju leyti skýrt málið. „Það er ennþá mitt mat að ráð­herra hafi ekki fært fram öll þau gögn sem lágu fyrir í mál­inu á fund­inum 28. febr­úar,“ sagði Halldóra.

Spurð hvort það séu þá að hennar mati óásætt­an­leg vinnu­brögð og að Ásmundur Einar ætti að víkja úr stóli ráð­herra, svo sem Halldóra sagði í frétt Stund­ar­innar síð­ast­lið­inn föstu­dag, svar­aði hún:

„Mér finn­ast það alla vega óásætt­an­leg vinnu­brögð. Ráðherra við­ur­kenndi það á fund­inum að það er til minn­is­blað, og var minn­is­blað sem lá fyrir í ráðu­neyt­inu sem nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins byggði á. Það voru nákvæm­lega þær upp­lýs­ingar sem við í nefnd­inni vorum að biðja um 28. febr­úar. Mögulega báðum við rangt um þær upp­lýs­ingar, það er stundum sem svona ein­faldir hlutir eru flæktir. Það þó átti að vera mjög skýrt að við vorum að biðja um gögn sem sýndu á hverju ráðu­neytið byggði form­lega nið­ur­stöðu sína í þessu máli. Það var skiln­ingur minn, og ann­arra nefnd­ar­manna, á þessum fundi með ráð­herra að þessi gögn væru hrein­lega ekki til. Okkur fannst það mjög furðu­legt og það var meðal ann­ars ástæða þess að við sendum út þessa beiðni um upp­lýs­ingar frá ráðu­neyt­inu, eftir fund með barna­vernd­ar­nefnd­unum sem í hlut áttu.“

Telur ekki hægt að bjóða Braga fram

Að mati Halldóru gengur ekki að Ísland bjóði Braga fram sem full­trúa í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna eftir tíð­indi síð­ustu daga. „Nei, það finnst mér engan veg­inn. Mér finnst ofsa­lega furðu­legt að menn átti sig ekki á því. Þetta mál er algjör­lega á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar. Að fara að bjóða fram aðila í þetta mik­il­væga, alþjóð­lega starf sem ekki ríkir traust á og er jafn umdeildur og Bragi er, það myndi mér finn­ast ótrú­lega und­ar­leg nið­ur­staða.“

Halldóra seg­ist telja að vel­ferð­ar­nefnd og utan­rík­is­mála­nefnd eigi báðar að taka málið upp en hún seg­ist þó eiga eftir að taka þá umræðu með öðrum nefnd­ar­mönnum. Næstu skref séu að funda með Braga og reka á eftir því að leynd verði aflétt af gögn­unum. „Svo þurfum við að skoða það hvort að við eigum að beita okkur fyrir því að til­nefn­ing Braga verði dregin til baka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár