Norðurlöndin bíða frekari upplýsinga um embættisfærslur Braga: „Fylgjumst með framgangi athugunarinnar“

„Við höfum átt í sam­skiptum við íslensk stjórn­völd og okkur er kunn­ugt um að þau hafi tekið málið til skoð­unar,“ segir upp­lýs­inga­full­trúi danska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Norðurlöndin bíða frekari upplýsinga um embættisfærslur Braga: „Fylgjumst með framgangi athugunarinnar“

Framboð Braga Guð­brands­sonar til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna nýtur stuðn­ings Dan­merkur, Noregs, Sví­þjóðar og Finn­lands þrátt fyrir að vel­ferð­ar­ráðu­neytið á Íslandi hafi snuprað hann fyrir óeðli­leg afskipti af barna­vernd­ar­máli. 

Eins og Stundin hefur fjallað ítar­lega um beitti Bragi sér fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að hann hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega. Síðar komst vel­ferð­ar­ráðu­neytið að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi hefði farið út fyrir vald­svið sitt með þessum afskiptum og sendi honum til­mæli vegna máls­ins. Alþingi og hinum Norð­ur­lönd­unum var ekki greint frá þessu fyrr en löngu eftir að rík­is­stjórn Íslands ákvað að bjóða Braga fram til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Eftir að Stundin fjall­aði um afskipti Braga Guð­brands­sonar af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu þann 27. apríl síð­ast­lið­inn setti Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra af stað óháða úttekt á mál­inu og fól  Kjartani Bjarna Björg­vins­syni hér­aðs­dóm­ara og Kristínu Bene­dikts­dóttur dós­ent við laga­deild HÍ að rann­saka fyr­ir­liggj­andi gögn og máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda. Gert er ráð fyrir að nið­ur­staða úttekt­ar­innar liggi fyrir í byrjun júní. 

Áætlaður útlagður kostn­aður íslenskra stjórn­valda við fram­boð og kosn­inga­bar­áttu Braga er í kringum fjórar millj­ónir króna að sögn Sveins H. Guð­mars­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

„Er þar einkum um ferða­kostnað að ræða, auk útgáfu kynn­ing­ar­efnis. Þessi kostn­aður fellur að mestu leyti á vel­ferð­ar­ráðu­neytið en fram­lag utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins felst í aðstoð eins af starfs­mönnum íslensku fasta­nefnd­ar­innar í New York við þetta verk­efni,“ segir í svari Sveins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. 

„Höfum átt í samskiptum við íslensk stjórnvöld“

Stundin sendi dönskum, finnskum, norskum og sænskum stjórn­völdum fyr­ir­spurnir um fram­boð Braga í síð­ustu viku og fékk svör fyrir helgi. 

„Við getum stað­fest að herra Bragi Guð­brands­son er Norð­ur­landa­fram­bjóð­andi og nýtur þar af leið­andi stuðn­ings Dan­merkur. Við höfum átt í sam­skiptum við íslensk stjórn­völd og okkur er kunn­ugt um að þau hafi tekið málið til skoð­unar. Við treystum íslenskum stjórn­völdum til ákvarð­ana um við­eig­andi ráð­staf­anir ef þess ger­ist þörf í þessu máli,“ segir í svari frá utan­rík­is­ráðu­neyti Dan­merkur til Stund­ar­innar. 

Svör Svía eru í svip­uðum dúr. „Framboð Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar SÞ nýtur stuðn­ings Norð­ur­land­anna, meðal ann­ars Sví­þjóðar. Nýlega var okkur greint frá því að sett hefði verið af stað óháð athugun á verk­lagi barna­vernd­ar­yf­ir­valda á Íslandi. Við fylgj­umst með fram­gangi athug­un­ar­innar í gegnum sendi­ráð okkar í Reykja­vík og bíðum frek­ari upp­lýs­inga,“ segir upp­lýs­inga­full­trúi hjá sænska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í svari til Stund­ar­innar. 

„Norð­ur­löndin styðja almennt fram­boð hvers ann­ars. Í þessu til­viki höfum við litið til bak­grunns og hæfni fram­bjóð­and­ans með hefð­bundnum hætti og á þeim grund­velli ákveðið að styðja fram­bjóð­anda Íslands. Ef nýjar upp­lýs­ingar um fram­bjóð­and­ann koma fram eftir form­legum leiðum, þá tökum við málið til end­ur­skoð­unar,“ segir í svari norska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 

„Við höldum áfram að styðja
fram­bjóð­and­ann nema nið­ur­stöður athug­un­ar­innar gefi til­efni til ann­ars“

Finnar taka í sama streng: „Finnland, rétt eins og hin Norð­ur­löndin, styður þennan fram­bjóð­anda. Okkur er kunn­ugt um að nú stendur yfir óháð athugun á máls­með­ferð innan barna­vernd­ar­kerf­is­ins. Við höldum áfram að styðja fram­bjóð­and­ann nema nið­ur­stöður athug­un­ar­innar gefi til­efni til ann­ars.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár