Braga fannst ótrúverðugt að barn hefði „viðurkennt“ meint brot föður

Samkvæmt fund­ar­gerð sem Barna­vernd­ar­stofa hefur afhent var „rætt almennt um að þegar for­eldrar deili hart um umgengni þá geti það leitt til þess að ljótar ásak­anir komi fram“.

Braga fannst ótrúverðugt að barn hefði „viðurkennt“ meint brot föður
Ráðu­neytið taldi Braga hafa farið út fyrir vald­svið sitt. Bragi Guð­brandss­son er í fram­boði til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna en und­an­farna daga hefur Stundin birt fjölda gagna sem sýna að Bragi hafði afskipti af barn­ar­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði. Þau afskipti voru talin þess eðlis, sam­kvæmt nið­ur­stöðu skoð­unar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, að Bragi hefði þar farið út fyrir vald­svið sitt. Mynd: Government.is

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, taldi ótrú­verð­ugt að barn hefði „við­ur­kennt“ sam­kvæmt skýrslu list­með­ferð­ar­fræð­ings að faðir hefði brotið gegn því. 

Hann sagði orða­lagið ein­kenni­legt og benda til þess að „gengið hefði verið á eftir þessum upp­lýs­ingum hjá barn­inu“.

Sjón­ar­mið Braga birt­ist í fund­ar­gerð um fund sem var hald­inn að hans frum­kvæði þann 20. jan­úar 2017 og sner­ist um barna­vernd­ar­málið í Hafn­ar­firði sem Stundin hefur fjallað um. Barna­vernd­ar­stofa afhenti Stund­inni og RÚV fund­ar­gerð­ina fyrr í vik­unni.

Fram kemur að í lok fund­ar­ins hafi verið „rætt almennt um að þegar for­eldrar deili hart um umgengni þá geti það leitt til þess að ljótar ásak­anir komi fram sem eigi ekki við rök að styðj­ast“. 

Þegar fund­ur­inn var hald­inn hafði Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar sent lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynn­ingu vegna vís­bend­inga um kyn­ferð­is­brot og lög­reglan brugð­ist hratt við með bréfi, aðeins þremur dögum síðar, um að emb­ættið hygð­ist bíða eftir nið­ur­stöðum könn­un­ar­við­tals í Barna­húsi. Til­vís­unin sem var send þangað lá óhreyfð í póst­hólfi Barna­húss í mánuð auk þess sem tölvu­póst­kerfi stofn­un­ar­innar bil­aði á sama tíma. Þar var málið statt þegar Bragi Guð­brands­son skipti sér af störfum Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar og beitti sér fyrir umgengni stúlkn­anna við föð­ur­fjöl­skyld­una.

Und­an­farna daga hefur Bragi hafnað því að afskipti hans af barna­vernd­ar­mál­inu hafi tengst umgengni föð­ur­ins við dætur sínar en eins og Stundin hefur rakið stang­ast sá mál­flutn­ingur á við gögn máls­ins og skrán­ingu sam­skipt­anna. Hér má sjá frum­gögn um afskipti Braga, en vel­ferð­ar­ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu að með þeim hefði Bragi farið út fyrir starfs­svið sitt. 

Fund­ar­gerðin sem Barna­vernd­ar­stofa hefur afhent sýnir að Bragi hélt áfram að hafa áhrif á fram­gang umrædds barna­vernd­ar­máls eftir að til­vís­un­ar­bréfið var mót­tekið. Það var á ráð­gjaf­ar­fundi hjá Barna­vernd­ar­stofu, en sam­kvæmt minn­is­blaði Braga um málið var það „sam­hljóða nið­ur­staða fund­ar­ins“ að ekki yrði tekið könn­un­ar­við­tal við aðra stúlk­una þótt lög­regla hefði til­kynnt um beðið væri eftir nið­ur­stöðu slíks könn­un­ar­við­tals. 

Í upp­hafi fund­ar­ins ræddi Bragi um að starfs­menn barna­vernd­ar­nefnda þyrftu að gæta þess að „stíga ekki inn í deilur milli for­eldra um umgengni“. Vísar hann þá vænt­an­lega til þess að Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hafði ráð­lagt móð­ur­inni að halda stúlk­unum í „öruggu skjóli“ meðan meint kyn­ferð­is­brot föður væru könnuð. Hafði föð­ur­fjöl­skyldan gagn­rýnt þá ráð­gjöf harð­lega og fengið Braga til að beita sér fyrir umgengni.

Fram kemur í fund­ar­gerð­inni að teknar hefðu verið „tvennar skýrslu­tökur af stúlkunni að beiðni lög­reglu“, en hátt í tvö ár voru liðin síðan þessar skýrslur höfðu verið teknar. Samkvæmt minn­is­blaði Braga um málið var talið að það gæti gengið gegn hags­munum barns­ins að fara aftur í könn­un­ar­við­tal.

Á fund­inum var vikið að til­kynn­ingu list­með­ferð­ar­fræð­ings og áhyggna hans af meintum kyn­ferð­is­brotum. „Að mati BG [Braga Guð­brands­sonar] var það mjög ein­kenni­legt orða­lag í til­kynn­ingu þar sem sagt var að barnið við­ur­kenndi að faðir hefði brotið gegn því. Orðalag til­kynn­ing­ar­innar þótti benda til þess að gengið hefði verið á eftir þessum upp­lýs­ingum hjá barn­inu.“

„Að mati BG var það mjög ein­kenni­legt orða­lag
í til­kynn­ingu þar sem sagt var að barnið við­ur­kenndi að faðir hefði brotið gegn því“

Samkvæmt skjali frá 21. febr­úar 2017 komst for­stöðu­maður Barna­húss skömmu síðar að þeirri nið­ur­stöðu að list­með­ferð­ar­fræð­ing­ur­inn hefði ekki gert sekur um neitt slíkt. Í minn­is­blaði frá Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar er fjallað um sím­tal sem starfs­maður átti við Ólöfu Ástu Farest­veit, for­stöðu­mann Barna­húss. Fram kemur fram að hún hafi rætt við list­með­ferð­ar­fræð­ing­inn og farið yfir það með honum hvernig upp­lýs­ing­arnar komu fram. „Hún sagði að það væri ljóst að upp­lýs­ing­arnar hefðu komið fram í frjálsri frá­sögn.“ Auk þess er greint frá því að list­með­ferð­ar­fræð­ing­ur­inn sé með mikla og góða reynslu, m.a. af barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans, og sé með­vituð um að spyrja ekki leið­andi spurn­inga. 

Eins og lög­maður föð­ur­ins í mál­inu benti á í sam­tali við Stundina í gær er list­með­ferð­ar­fræð­ingum almennt ekki ætlað það hlut­verk að rann­saka grun um meint kyn­ferð­is­brot. Þrátt fyrir þetta ákvað Barnahús að verða ekki við þeirri beiðni Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar að meint kyn­ferð­is­brot yrðu rann­sökuð og önnur eða báðar stúlk­urnar teknar í könn­un­ar­við­tal. Í stað­inn var ákveðið að þær yrðu áfram hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingnum.  Þar héldu áfram að koma fram „sterkar vís­bend­ingar um kyn­ferð­is­lega mis­notkun föður“ sem barna­vernd­ar­nefndin hafði áhyggjur af. Hvergi í þeim gögnum sem Stundin hefur kom­ist yfir, hvort sem heldur form­lega frá Barna­vernd­ar­stofu eða eftir óform­legum leiðum, kemur fram að lög­reglu hafi verið til­kynnt um þá ákvörðun Barna­húss að verða ekki við beiðni barna­vernd­ar­nefnd­ar­innar um könn­un­ar­við­tal. 

Uppfært kl. 16:30:
Ólöf Ásta Farest­veit hafði sam­band og sagð­ist telja ummælin rangt höfð eftir. „Í sím­tal­inu var ekki verið að meta trú­verð­ug­leika frá­sagnar barns­ins hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingi heldur upp­lýsa barna­vernd Hafn­ar­fjarðar hvað við­kom­andi list­með­fer­ar­fræð­ingur hefði sagt und­ir­rit­aðri,“ segir Ólöf. „Eins og fram kemur ef barnið færi að tala um kyn­ferð­is­brot hefði und­ir­rituð að sjálf­sögðu óskað eftir því að málið yrði kært á nýjan leik til lög­reglu og það er hlut­verk barna­verndar Hafn­ar­fjarðar að aðhaf­ast um slíkt.  Und­ir­rituð taldi vinnu list­með­ferð­ar­fræð­ings fag­lega með til­liti til úrvinnslu til­finn­inga en ekk­ert mat var gert á trú­verð­ug­leika upp­lýs­ing­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár