Fræðimenn fordæma árásir Tyrkja og aðgerðaleysi Bandaríkjastjórnar

Banda­ríkin sögð sam­sek í þjóð­ern­is­hreins­unum Erdogans vegna „hjáróma gagn­rýni“ Trump-stjórn­ar­innar. Rík­is­stjórn Íslands hefur ekki for­dæmt hernað Tyrkja gegn Kúrdum opin­ber­lega þótt fregnir hafi borist af því að Íslend­ingur hafi fallið í aðgerð­unum.

Fræðimenn fordæma árásir Tyrkja og aðgerðaleysi Bandaríkjastjórnar
Fordæma hernað Tyrkja Fjöldi fræði­manna for­dæmir í opnu bréfi fram­ferði Tyrkja í hern­aði þeirra gegn Kúrdum í Afrin-hér­aði í norð­ur­hluta Sýrlands. Jafn­framt segja þeir Banda­ríkin með­sek í þjóð­ern­is­hreins­unum Erdogans Tyrk­lands­for­seta, sökum þess að rík­is­stjórn Donalds Trumps hafi ekki brugð­ist við hern­að­inum og komið banda­mönnum sínum í bar­átt­unni gegn ISIS, Kúrdum, til hjálpar.

Árás Tyrkja á Afrin-hérað í norð­ur­hluta Sýrlands er skýrt brot á alþjóða­lögum rétt eins og þeir stríðs­glæpir sem rík­is­stjórn Bashar al-Assads í Sýrlandi hefur gerst sek um. Rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hafa með hjáróma og veiga­litlum mót­mælum sínum á fram­ferði Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi gerst með­sek í þjóð­ern­is­hreins­unum Erdogans for­seta Tyrk­lands. Einangra verður Tyrkland efna­hags­lega, diplómat­ískt og hern­aða­lega þar til her­sveitir þess verða kall­aðar til baka frá norð­ur­hluta Sýrlands.

Mannúðarsinnaðir fræðimenn fordæma Trump

Þetta er efn­is­legt inni­hald opins bréfs sem ritað er af Neyð­ar­nefnd­inni fyrir Rojava, félags­skap stofn­uðum af hópi mann­úð­ar­sinn­aðra fræði­manna víðs vegar að úr heim­inum, með það að mark­miði að hefja alþjóð­lega her­ferð til stuðn­ings Kúrdum og til hjálpar Afrin-hér­aði.

Meðal þeirra sem und­ir­rita bréfið eru Noam Chomsky, einn áhrifa­mesti mál­vís­inda­maður og sam­fé­lags­rýnir sam­tím­ans; Gloria Steinem, blaða­maður og einn þekkt­asti femíniski aðgerð­ar­sinni heims; Judith Butler, þekktur femínískur heim­spek­ingur, Sally Haslanger, pró­fessor í sál­fræði sem hefur verið leið­andi í kvenna- og kynja­fræðum und­an­farin ár; Michael Walzer, heið­urs­pró­fessor í félags­vís­indum sem er meðal ann­ars höf­undur bók­ar­innar Just and Unjust Wars; David Graeber, pró­fessor í mann­fræði og anar­kískur aktí­visti; og Íslend­ing­ur­inn Ásta Krist­jana Sveins­dóttir, dós­ent í heim­speki við San Fransisco-háskóla.

Í bréf­inu er rakið hvernig kúrdískar her­sveitir SDF áttu mestan þátt í að ná sýr­lensku borg­inni Raqqa úr höndum ISIS og að eftir það hafi menn talið hryðju­verka­sam­tökin svo gott sem sigruð. Í jan­úar réð­ust hins vegar tyrk­neskar her­sveitir inn í Afrin, sem er eitt þriggja hér­aða sem saman mynda Rojava, svæði sem er undir stjórn Kúrda í norð­ur­hluta Sýrlands. Það olli því að her­menn Kúrda sáu sig til­neydda að snúa heim til Afrin til að verj­ast tyrk­neska hernum. Borgin Afrin féll eftir miklar loft­árásir 18. mars síð­ast­lið­inn og olli það enn frek­ari hörm­ungum fyrir íbúa borg­ar­innar sem neydd­ust til að flýja undan her­sveitum Tyrkja og Þjóð­ar­hers Sýrlands.

„Margir þeirra sem flýðu Afrin sofa nú undir berum himni eða í tjald­borgum, án helstu nauð­þurfta,“ segir í bréf­inu. Þeir sem urðu eftir verða nú fyrir mis­munum á grund­velli þjóð­ernis og kyn­ferð­is­legu ofbeldi, líkt og ISIS sýndi af sér í Írak.

Engin ástæða var fyrir árásinni á Afrin segja bréf­rit­arar enda hafi Afrin verið frið­samur griða­staður fyrir tugi þús­unda flótta­manna. Tyrkir haldi því hins vegar fram að ógn hafi staðið af Rojava því fólkið sem þar stýrir málum, Kúrdar sem hafa verið helstu banda­menn Banda­ríkj­anna á bar­átt­unni gegn ISIS í Sýrlandi, séu „hryðju­verka­menn“.

Árás Tyrkja á Afrin er brot á alþjóða­lögum og Banda­ríkja­stjórn hefur aðeins mót­mælt fram­ferði þeirra með lágróma röddu. Af þeim sökum, segja bréf­rit­arar, eru Banda­ríkin með­sek í þjóð­ern­is­hreins­unum Erdogans og áætl­unum hans um að hrekja Kúrda burt af því svæði í norð­ur­hluta Sýrlands þar sem þeir hafa búið árhund­ruðum saman. Til að stöðva þetta brjál­æði verði að ein­angra Tyrkland efna­hags­lega, póli­tískt og hern­að­ar­lega.

Íslensk stjórnvöld gagnrýna ekki hernað Tyrkja opinberlega

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son

Í sam­hengi við þessa hörðu gagn­rýni fræða­fólks á Tyrki og aðgerð­ar­leysi rík­is­stjórnar Donalds Trumps í Banda­ríkj­unum má benda á að íslensk stjórn­völd hafa ekki for­dæmt hernað Tyrkja í Rojava með afger­andi hætti. Þó hafa borist fregnir af því að Haukur Hilm­ars­son, íslenskur aktí­visti, hafi fallið í aðgerðum Tyrkja.

Einu heim­ildir um að Ísland hafi hreyft mót­bárum við aðgerðum Tyrkja eru þær að Sveinn H. Guð­mars­son, upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, lýsti því við frétta­vef­inn Eyjuna að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefði eftir diplómat­ískum leiðum for­dæmt fram­ferði Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi. Þá svar­aði Guð­laugur Þór því einnig til í fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi 22. mars síð­ast­lið­inn að það hefði hann gert fáeinum dögum eftir að hern­að­ur­inn hófst 20. jan­úar síð­ast­lið­inn, og þá beint við sendi­herra Tyrk­lands gagn­vart Íslandi.

Fram­ferði Tyrkja hefur ekki verið for­dæmt opin­ber­lega af hálfu íslenskra stjórn­valda, svo sem í formi yfir­lýs­inga eins og dæmi eru um að gert sé vegna hern­að­ar­að­gerða.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár