Aðili

Guðlaugur Þór Þórðarson

Greinar

StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.
GreiningBorgarstjórnarkosningar 2026

Hitnar undir Hildi: Kanna áhug­ann á Guðlaugi Þór

Hildur Björns­dóttir hefur ein lýst yfir vilja til að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyri rnæstu kosn­ingar. Fylgið hefur risið undir hennar stjórn en nú er í gangi könnun þar sem tvær spurn­ingar snú­ast um end­ur­komu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar í borg­ar­málin. Orðrómur er um að leitað sé að ein­hverjum til að skora borg­ar­stjóra á hólm en Sam­fylk­ingin mælist líka sterk­ari nú en í kosn­ing­unum 2022.
RannsóknRunning Tide

Sökktu kurli og seldu synda­af­lausn

„Ýttu á takk­ann og bjarg­aðu heim­in­um,“ skrif­ar vís­inda­mað­ur af kald­hæðni er hann bend­ir um­hverf­is­ráðu­neyt­inu á var­úð­ar­orð ut­an úr heimi um að­ferð­ir sem fyr­ir­tæk­ið Runn­ing Tide fékk leyfi stjórn­valda til að prófa í þágu lofts­lags í Ís­lands­höf­um. Að­gerð­irn­ar umbreytt­ust í allt ann­að en lagt var upp með. Þær voru án alls eft­ir­lits og gerðu svo þeg­ar upp var stað­ið lít­ið ef nokk­urt gagn. „Ísland er fyrsta landið í heim­inum til að búa til kolefn­is­ein­ingar með kolefn­is­bind­ingu í hafi,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn.

Myndband31 mín. lestur

Fréttir

Margar hita­veitur sjá fram á að geta ekki sinnt fyr­ir­sjá­an­legri eft­ir­spurn

Samkvæmt nið­ur­stöðum nýrrar úttektar um stöðu hita­veitna og nýt­ingu jarð­hita til hús­hit­unar sjá um 63 pró­sent hita­veitna hér á landi fram á aukna eft­ir­spurn og telja fyr­ir­sjá­an­leg vanda­mál við að mæta henni. Hjá stórum hluta þeirra er sú eft­ir­spurn tengd auknu magni vatns til hús­hit­unar en einnig vegna stórnot­enda eða iðn­aðar.
FréttirNý ríkisstjórn

Guð­laugur seg­ist hafa sóst sér­stak­lega eftir umhverf­is­ráðu­neyt­inu

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nýr umhverf­is­ráð­herra, seg­ist hafa sóst eftir því sér­stak­lega að fá að taka við ráðu­neyti umhverfis- og lofts­lags­mála þegar fyrir lá hvaða ráðu­neyti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá. Hann seg­ist ekki hafa sóst sér­stak­lega eftir því að verða utan­rík­is­ráð­herra áfram.
Fréttir

Bjarni taldi eðli­legt að vafi um fram­kvæmd kosn­inga ylli ógild­ingu 2011

Bjarni Bene­dikts­son var harð­orður í umræðum um ógild­ingu kosn­inga til stjórn­laga­þings árið 2011. Meðal ann­ars sagði hann það að „ef menn fá ekki að fylgj­ast með taln­ingu atkvæða“ ætti það að leiða til ógild­ingar. Bjarni greiddi hins vegar í gær atkvæði með því að úrslit kosn­inga í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum ættu að standa, þrátt fyrir fjöl­marga ann­marka á fram­kvæmd­inni.
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirCovid-19

Ráð­herrar á „gráu svæði“ vegna tengsla við fyr­ir­tæki sem fá Covid-stuðn­ing stjórn­valda

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir ljóst að hags­muna­tengsl ráð­herra við fyr­ir­tæki hafi ekki verið rædd innan rík­is­stjórn­ar­innar við gerð aðgerða­pakka. Vísar Þór­hildur lík­lega til Bláa lóns­ins og Kynn­is­ferða, sem ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks tengj­ast. Enginn ráð­herra hefur sagt sig frá þessum málum vegna tengsla.

Mest lesið undanfarið ár