Hitnar undir Hildi: Kanna áhugann á Guðlaugi Þór

Hildur Björns­dóttir hefur ein lýst yfir vilja til að leiða Sjálfstæðis­flokkinn fyri rnæstu kosningar. Fylgið hefur risið undir hennar stjórn en nú er í gangi könnun þar sem tvær spurningar snúast um endurkomu Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar í borgar­málin. Orðrómur er um að leitað sé að einhverjum til að skora borgar­stjóra á hólm en Samfylkingin mælist líka sterkari nú en í kosningunum 2022.

Áskorandinn
Áskor­and­inn Guð­laugur Þór þykir lík­legur til að reyna að skáka Hildi Björns­dóttur í odd­vita­vali Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Mynd: Golli

„Myndi það auka eða minnka líkurnar á því að þú kysir Sjálfstæðis­flokkinn í næstu borgar­stjórnar­kosningum ef Guðlaugur Þór Þórðarson væri oddviti/borgar­stjóra­efni Sjálfstæðis­flokksins?“

Svona er spurt í Gallup-könnun sem nýlega var send út í vikunni. Pískrað hefur verið um drauma Guðlaugs Þórs, núverandi þingmanns og fyrr­verandi ráðherra, að snúa aftur í borgar­stjórn Reykja­víkur og leiða lista flokksins í komandi kosningum. Hann var borgar­fulltrúi á árunum 1998 til 2006, en þá hafði hann setið á þingi í þrjú ár.

Hildur Björns­dóttir, núverandi oddviti, hefur lýst yfir vilja til að leiða listann á ný í vor og hefur flokkurinn mælst með meira fylgi undan­farna mánuði en hann uppskar í kosningunum 2021. Samkvæmt nýrri könnun Gallup, sem gerð var fyrir Viðskipta­blaðið, er fylgis­aukning Sjálfstæðis­flokksins frá kosningum 6,3 prósentu­stig. Mælist flokkurinn með 30,8 prósent í könnuninni.

Könnun Gallup 10. desember 2025
Sjálfstæðisflokkurinn
30,8%
Samfylkingin
27,4%
Miðflokkurinn
10,2%
Viðreisn
8,9%
Sósíalistaflokkurinn
6,3%
Píratar
5,0%
Vinstri græn
4,5%
Flokkur fólksins
4,0%
Framsókn
2,6%
Heimild: Gallup.

Hópur Sjálfstæðis­manna telur að flokkurinn eigi meira inni en hann …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár