Sigríður á ráðstefnu með þjóðernispopúlistum um hvernig megi „endurvekja traust til stjórnvalda og lýðræðislega ábyrgð“

Frétta­vef­ur­inn Politico hæð­ist að því að íslenska dóms­mála­ráð­herr­anum hafi verið boðið að flytja fyr­ir­lestur á ráð­stefnu Evr­ópu­sam­taka íhalds- og umbóta­sinna sem fram fer í Brussel þann 22. mars næst­kom­andi.

Sigríður á ráðstefnu með þjóðernispopúlistum um hvernig megi „endurvekja traust til stjórnvalda og lýðræðislega ábyrgð“

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra er á meðal ræðu­manna á ráð­stefnu Evr­ópu­sam­taka íhalds- og umbóta­sinna sem fram fer í Brussel þann 22. mars næst­kom­andi undir yfir­skrift­inni „Framtíð Evrópu֧“. Þar mun hún stíga á stokk ásamt full­trúum hægri­flokka og þjóð­ern­ispopúlista víðs­vegar að úr Evrópu. Í lýs­ingu á atburð­inum kemur fram að ráð­stefnan feli í sér tæki­færi til sam­tals um íhalds­sama sýn á hvernig end­ur­vekja megi „traust til stjórn­valda og lýð­ræð­is­lega ábyrgð í Evrópu“.

Frétta­vef­ur­inn Politico hæð­ist að veru Sigríðar Andersen á ráð­stefn­unni og bendir á að hún er meðal þeirra fjöl­mörgu ræðu­manna sem eiga sér umdeildan feril og hneyksl­is­mál að baki. Eitthvað virð­ast þó stað­reynd­irnar hafa skol­ast til, því Politico full­yrðir að Sigríður sé „næstum því fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra eftir að hafa rétt svo varist van­traust­s­til­lögu í kjöl­far þess að hún náð­aði barn­a­níð­ing með leyni­legum hætti“. 

Þarna er vænt­an­lega vísað til tveggja aðskildra mála, ann­ars vegar þess að dóms­mála­ráðu­neytið hélt því leyndu, í trássi við ákvæði upp­lýs­inga­laga, að faðir for­sæt­is­ráð­herra hefði skrifað undir með­mæli fyrir barn­a­níð­ing­inn Hjalta Sigurjón Hauksson þegar hann sótti um upp­reist æru og hins vegar þess að dóms­mála­ráð­herra braut stjórn­sýslu­lög við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara og varð­ist van­trausti á Alþingi vegna máls­ins í síð­ustu viku. 

Á meðal ræðu­manna á ráð­stefn­unni er Angel Dzhambazki, búlgarskur Evr­ópu­þing­maður og þjóð­ern­is­sinni sem hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir ummæli um sam­kyn­hneigða, múslima og Roma-fólk. Árið 2016 kvart­aði sænsk Evr­ópu­þing­kona undan hat­ur­soræðu hans í garð minni­hluta­hópa og hvatti íhalds­manna­þing­hóp­inn á Evr­ópu­þing­inu til að grípa til ráð­staf­ana vegna máls­ins. Svo virð­ist þó sem hann njóti enn virð­ingar hjá Evr­ópu­sam­tökum íhalds­manna og umbóta­sinna í Evrópu. 

Annar ræðu­maður á ráð­stefn­unni er Victor Ponta, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Rúmeníu sem hefur sætt rann­sókn vegna gruns um skatta­laga­brot og mis­beit­ingu valds en verið hreins­aður af grun um pen­inga­þvætti og fjár­svik. Af nor­rænum gestum má nefna Evr­ópu­þing­mann­inn Anders Primdahl Vistisen úr Danska þjóð­ar­flokknum og Samuli Virtanen, varaut­an­rík­is­ráð­herra Finn­lands sem var ávíttur af lög­reglu í fyrra fyrir að fela sig í bíl­skotti þegar hann átti leyni­fund með for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands. Nokkrir af ræðu­mönnum koma úr þing­manna­hópi stjórn­ar­flokks­ins í Póllandi, Laga og rétt­lætis. Einn þeirra er Ryzsard Czarnecki sem nýlega var rek­inn úr stóli vara­for­seta hjá Evr­ópu­þing­inu eftir að hafa kallað kollega sinn á þing­inu „shmaltsovnik“ sem er skammar­yrði yfir Pólverja sem not­færðu sér veika stöðu gyð­inga þegar landið var hernumið af nas­istum eða unnu með her­námslið­inu. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er einn af fáum hægri­flokkum í Vestur-Evrópu sem til­heyra Evr­ópu­sam­tökum íhalds- og umbóta­sinna, en þar eru meðal ann­ars stjórn­mála­flokkar og stjórn­mála­menn sem þekktir eru fyrir þjóð­ern­is­of­stæki, alræð­istil­burði og harða afstöðu gegn rétt­indum minni­hluta­hópa.

Á meðal syst­ur­flokka Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sam­tök­unum eru Lög og rétt­læti, sem hefur beitt sér af mik­illi hörku gegn rétti kvenna til fóst­ur­eyð­inga, og flokkur Erdogans í Tyrk­landi, Rétt­lætis- og fram­fara­flokk­ur­inn, sem hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir alræð­istil­burði, mann­rétt­inda­brot og kúgun. 

Eins og Stundin hefur áður fjallað ítar­lega um hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hert stefnu sína í útlend­inga­málum í tíð Sigríðar Andersen sem dóms­mála­ráð­herra. Í því sam­hengi ætti ef til vill ekki að koma sér­stak­lega á óvart að hún taki þátt í við­burði með þjóð­ern­ispopúlistum frá öðrum Evr­ópu­ríkjum. Sigríður Andersen hefur sætt gagn­rýni fyrir lög­brot við skipun dóm­ara. Syst­ur­flokkar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Póllandi og Tyrk­landi hafa hins vegar gengið miklu harðar fram gagn­vart dóms­vald­inu. Þannig hefur til dæmis flokkur Erdogans staðið fyrir póli­tískum hreins­unum þar sem dóm­arar í þús­unda­tali voru hand­teknir eða þeim vikið frá störfum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár