„Það skemmtilegasta sem ég geri“

Nýjasti með­limur Stuð­manna, bassa­leik­ar­inn Ingi­björg Elsa Turchi, lifir á tón­list­inni.

„Það skemmtilegasta sem ég geri“

Ég held ég sé búin að lifa ein­ungis á tón­list­ar­tengdum verk­efnum í tvö til þrjú ár og eru þau jafn fjöl­breytt og þau eru mörg. Allt frá því að spila með eigin hljóm­sveitum, í öðrum verk­efnum sem session­leik­ari, í gjörn­ingi hjá Ragnari Kjart­ans­syni mynd­list­ar­manni og að sjá um nám­skeið hjá Stelpur rokka!, sem er með því mest gef­andi sem ég hef gert á ævinni.

Ég lærði á hin ýmsu hljóð­færi frá 6-14 ára ald­urs, og var í tón­list­ar­skóla FÍH sam­hliða háskóla­námi í forn­grísku og lat­ínu. Ég kenndi forn­grísku í MR í eitt ár eftir útskrift og starf­aði aðeins við þýð­ingar en svo kall­aði tón­listin meira á mig. 

Að starfa sem tón­list­ar­maður þýðir bara að spila rosa­lega mikið og for­gangs­raða því sem maður tekur að sér. Um þessar mundir spila ég í mörgum fjöl­breyttum verk­efnum og má þar má meðal ann­arra nefna Babies-flokk­inn, Stuðmenn, Special- K, Soffíu Björgu, Jae Tyler og Teit Magn­ús­son, og svo gaf ég nýlega út 7” plötu á vegum SMIT Records. Þetta getur allt verið erfitt, eins og önnur vinna, en þegar öllu er á botn­inn hvolft þá er þetta það skemmti­leg­asta sem ég geri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár