„Stólaði á að þetta myndi borga sig“

Logi Leó Gunn­ars­son segir að það hafi ekki hvarflað að honum að verða ekki lista­maður.

„Stólaði á að þetta myndi borga sig“

Þegar ég kláraði mennta­skóla vissi ég að mig lang­aði ekki í hefð­bundið háskóla­nám; ég vildi gera eitt­hvað skap­andi þannig að ég sótti um bæði graf­íska hönnun og mynd­list í Lista­há­skól­anum. Ég varð mjög leiður þegar ég fékk að heyra að ég hafi kom­ist inn í graf­íska hönnun, en degi síðar heyrði ég að ég hefði líka kom­ist inn í mynd­list­ina.

Mamma mín útskrif­að­ist úr LhÍ 2002 og ég átti frekar gott mynd­list­ar­legt upp­eldi, en raun­veru­legur áhugi minn á list vakn­aði þegar ég bjó í Svíþjóð. Ég var í MR fyrstu tvö árin í mennta­skóla og þrátt fyrir að finna mig ekki þar þá var gott félags­líf og góður andi í skól­anum. Þegar við fjöl­skyldan fluttum út í eitt ár fór ég á IB braut og fannst það vera mjög félags­lega ein­angr­andi þannig að ég byrj­aði að teikna á hverjum degi og þró­aði teiknistíl sem ég er ennþá svo­lítið fastur í.

Ég kom aftur og útskrif­að­ist síðan úr MH og LhÍ, og finnst í dag mjög skemmti­legt að vera lista­maður. Ég hef unnið í 11 ár í bíó­húsum og er í upp­setn­ing­ar­vinnu hjá lista­söfnum, en ég eyði að minnsta kosti tveimur tímum á dag í eigin list. Ég stólaði á að þetta myndi borga sig og það hefur verið erf­ið­is­vinna, en ég held að hún hafi gert það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár