„Alfarið ákvörðun ríkisins“ að svipta hælisleitendur jólapeningnum

Útlend­inga­stofnun sviptir hæl­is­leit­endur des­em­ber­upp­bót­inni með vit­und og vilja dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer áfram með mál­efni útlend­inga í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur og reglu­gerð Sigríðar Andersen er enn í gildi.

„Alfarið ákvörðun ríkisins“ að svipta hælisleitendur jólapeningnum

Hæl­is­leit­endur fá ekki jóla­upp­bót í ár eins og áður hefur tíðkast. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Útlend­inga­stofnun sendi Reykja­nesbæ, Hafn­ar­fjarð­arbæ og Reykja­vík­ur­borg í lok nóv­em­ber. 

Fréttin hefur verið upp­færð, sjá neðst í grein­inni.

RÚV fjall­aði um málið á dög­unum og greindi frá því að Útlend­inga­stofnun hefði haft sam­ráð við dóms­mála­ráðu­neytið um að svipta hæl­is­leit­endur des­em­ber­upp­bót­inni, en ákvörð­unin er tekin á grund­velli nýlegrar reglu­gerðar Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra um útlend­inga. 

„Það er alfarið ákvörðun rík­is­ins að fella niður umrædda upp­bót handa hæl­is­leit­endum“

„Það er alfarið ákvörðun rík­is­ins að fella niður umrædda upp­bót handa hæl­is­leit­endum,“ segir Elfa Björk Ell­erts­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Reykja­vík­ur­borgar á sviði vel­ferð­ar­mála og umhverf­is­mála, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. 

Kristín Völ­und­ar­dóttirfor­stjóri Útlend­inga­stofn­unar

Í bréfi Útlend­inga­stofn­unar til sveit­ar­fé­lag­anna kemur fram að sam­kvæmt 30. gr. umræddrar reglu­gerðar sé Útlend­inga­stofnun heim­ilt að setja almennar reglur um aukna þjón­ustu við umsækj­endur að fengnu sam­þykki ráð­herra. „Slíkar reglur hafa ekki verið settar og að mati stofn­un­ar­innar er ekki til­efni til þess að svo stöddu,“ segir í bréf­inu sem er und­ir­ritað af Kristínu Völ­und­ar­dóttur, for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar. 

„Útlend­inga­stofnun mun því ekki greiða umsækj­endum um alþjóð­lega vernd auk­inn fjár­hags­stuðn­ing um kom­andi jól og veðrur hann því með sama hætti og aðra mán­uði árs­ins. Með hlið­sjón af því mark­miði reglu­gerð­ar­innar að sam­ræma þjón­ustu og kveða skýrt á um rétt umsækj­enda upp­lýsir Útlend­inga­stofnun samn­ings­að­ila sína um fram­an­greinda ákvörðun.“ 

Stundin hefur áður fjallað um reglu­gerð Sigríðar Andersen sem felur meðal ann­ars í sér að útlend­ingar eru sviptir rétt­inum til fram­færslu­fjár eftir að hæl­is­um­sóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Ef hæl­is­leit­andi er frá ríki sem er á lista yfir örugg upp­runa­ríki og umsókn er metin „ber­sýni­lega til­hæfu­laus“ getur Útlend­inga­stofnun jafn­framt fellt niður alla þjón­ustu við við­kom­andi eftir að fram­kvæmd­ar­hæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir. Rauði kross­inn gagn­rýndi reglu­gerð­ina og benti á að vegna hennar gætu hæl­is­leit­endur lent milli steins og sleggju, án atvinnu­rétt­inda og fram­færslu­fjár, jafn­vel vikum saman meðan þeir biðu eftir að vera sendir úr landi. 

Undir lok síð­asta þings beittu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með Sigríði Andersen í far­ar­broddi, sér af mik­illi hörku gegn rétt­ar­bótum fyrir barna­fjöl­skyldur sem höfðu sótt um hæli á Íslandi. Aðrir flokkar á Alþingi sam­ein­uð­ust um laga­breyt­ing­arnar, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn greiddi atkvæði á móti þeim. Skömmu áður hafði Bjarni Bene­dikts­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, talað opin­skátt um að hann sæi eftir þeirri ákvörðun að veita albanskri fjöl­skyldu með lang­veikan dreng íslenskan rík­is­borg­ara­rétt.

Þrátt fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi sýnt meiri hörku í útlend­inga­málum en aðrir flokkar fer flokk­ur­inn, og Sigríður Á. Andersen, áfram með mál­efni hæl­is­leit­enda og flótta­manna í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. 

Uppfært kl. 22:40:

Rík­is­stjórnin mun nota ráð­stöf­un­arfé sitt til að greiða hæl­is­leit­endum jóla­upp­bót ef til­laga dóms­mála­ráð­herra, sem hún ætlar að leggja til á rík­is­stjórn­ar­fundi á morgun, gengur eftir. „Ég hef lagt til, í sam­ráði við for­sæt­is­ráð­herra, og mun leggja það til á rík­is­stjórn­ar­fundi á morgun, að rík­is­stjórnin ráð­stafi af því fé sem hún hefur til umráða fjár­hæð sem kemur til móts við hæl­is­leit­endur þessa vik­una,“ sagði hún í við­tali við RÚV í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár