Forsætisráðherra: „Slæm ráðstöfun“ að veita albönsku fjölskyldunum ríkisborgararétt

Bjarni Bene­dikts­son segir að lög­reglan fari ekki óvopnuð í Víðines þar sem hæl­is­leit­endur dvöldu.

Forsætisráðherra: „Slæm ráðstöfun“ að veita albönsku fjölskyldunum ríkisborgararétt

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra telur að það hafi verið „slæm ráð­stöfun“ að veita albönskum fjöl­skyldum með lang­veik börn rík­is­borg­ara­rétt á Íslandi árið 2015. Íslend­ingar þurfi að beita ströngum reglum til að tryggja að „við fáum ekki yfir okk­ur millj­ón flótta­menn“, jafn­vel taka upp kerfi þar sem fólki sé ekki hleypt inn í landið án vega­bréfs­á­rit­unar.

Þetta er haft eftir Bjarna í frá­sögn Morg­un­blaðs­ins af fundi Samtaka eldri sjálf­stæð­is­manna sem fram fór í Valhöll í gær, en þar sat for­sæt­is­ráð­herra fyrir svörum. Bjarni mun hafa sagt að lög­reglan hætti sér ekki óvopnuð í Víðines þar sem fjöldi hæl­is­leit­enda biði úrlausnar sinna mála. Rétt er þó að taka fram að nokkrir mán­uðir eru síðan aðstöðu Útlend­inga­stofn­unar á Víðinesi var lokað. Bjarni sagði erfitt að horfa á eftir miklum fjár­munum sem varið væri til hæl­is­leit­enda­mála. Engu að síður þyrfti að virða mann­úð­ar­sjón­ar­mið og mann­rétt­indi. 

„Það var slæm ráð­s­töf­un að fara rík­is­borg­ara­leið­ina í Alban­íu­mál­inu. Það má kannski segja að við höf­um með ein­hverj­um hætti misst stjórn á því máli sem end­aði svona,“ sagði Bjarni um þá ákvörðun Alþingis að veita Pepaj-fjöl­skyld­unni og Phellumb-fjöl­skyld­unni rík­is­borg­ara­rétt í des­em­ber 2015. Mál fjöl­skyldn­anna höfðu vakið mikla athygli, ekki síst vegna yngstu fjöl­skyldu­með­li­manna, Kevin litla sem glímir við ólækn­andi slím­s­eigju­sjúk­dóm og Arjans sem er með hjarta­galla. 

Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hefur hert veru­lega á stefnu Íslands í hæl­is­leit­enda­málum frá því hún tók við í jan­úar, meðal ann­ars með því að svipta til­tekna hópa hæl­is­leit­enda rétt­inum til að fá rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun frestað vegna kæru til æðra stjórn­valds eða dóm­stóla og með því að svipta hæl­is­leit­endur rétt­inum til fram­færslu­fjár eftir að hæl­is­um­sóknum þeirra er synjað og þeir bíða þess að vera sendir úr landi. Formaður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis hefur lýst stefn­unni sem svo að mæta eigi ákveðnum hópi hæl­is­leit­enda með „hörðum stál­hnefa“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár