Sigríður áfram með málefni dómstóla og brotaþola þrátt fyrir hneykslismálin

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra var staðin að því að brjóta lög við skipun dóm­ara, var í brennid­epli vegna hneyksl­is­mála er vörð­uðu upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna og hefur hert veru­lega á útlend­inga­stefnu Íslands. Hún mun áfram gegna emb­ætti dóms­mála­ráð­herra og fara með þessi mál­efni í nýrri rík­is­stjórn.

Sigríður áfram með málefni dómstóla og brotaþola þrátt fyrir hneykslismálin
Sigríður Andersen Dóms­mála­ráð­herra ræddi við dóm­ara í síð­ustu viku um að „opin­berar per­sónur“ ættu ekki að þola minni „rétt­ar­vernd“ en aðrir borg­arar lands­ins, þegar kæmi að tak­mörkun tján­ingar um þær. Mynd: Haraldur Gudjonsson/hag

Sigríður Á. Andersen, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun áfram fara með mál­efni dóm­stóla, brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis, útlend­inga og mann­rétt­inda í nýrri rík­is­stjórn. Þetta var stað­fest með for­seta­úr­skurði á rík­is­ráðs­fundi í dag. 

Leyndi upplýsingum um uppreist æru

Tveir og hálfur mán­uður er lið­inn síðan rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar var slitið vegna mála er vörð­uðu upp­reist æru dæmdra kyn­ferð­is­brota­manna. Í ljós kom að dóms­mála­ráðu­neytið, undir yfir­stjórn Sigríðar Andersen, hafði gengið lengra í upp­lýs­inga­leynd en lög heim­il­uðu þegar upp­lýs­ingum um með­mæli föður þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra fyrir kyn­ferð­is­brota­mann­inn Hjalta Sigurjón Hauksson var haldið frá almenn­ingi. Um leið hafði hún sagt Bjarna Bene­dikts­syni einum frá því að faðir hans hefði veitt Hjalta með­mæli. 

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu um miðjan sept­em­ber að almenn­ingur hefði átt rétt á upp­lýs­ingum um mál­efni kyn­ferð­is­brota­manna sem höfðu sótt um upp­reist æru, þvert á þá hörðu afstöðu sem dóms­mála­ráðu­neytið og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins tóku. 

Eftir að stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar var slitið kall­aði ráð­gjafa­ráð Við­reisnar eftir því að fram færi „rann­sókn“ á emb­ætt­is­færslum Sigríðar Andersen og Bjarna Bene­dikts­sonar. Slík rann­sókn fór aldrei fram.

Eins og Stundin greindi frá í gær hefur dóms­mála­ráðu­neytið enn ekki afhent Alþingi umbeðin gögn um málin sem sprengdu fyrri rík­is­stjórn né svarað upp­lýs­inga­beiðni þing­konu Pírata um málið.

Braut lög við skipun dómara

Í sömu vik­unni og í ljós kom að dóms­mála­ráðu­neytið hafði ekki fylgt upp­lýs­inga­lögum þegar almenn­ingi var neitað um upp­lýs­ingar um mál­efni manna sem höfðu fengið upp­reist æru komst Hér­aðs­dómur Reykja­víkur að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður Andersen hefði brotið lög þegar hún vék frá nið­ur­stöðu hæf­is­nefndar við skipun dóm­ara við Lands­rétt, nýtt dóms­stig sem hafði verið í und­ir­bún­ingi um ára­bil.

Sigríður valdi meðal ann­ars umsækj­anda sem hafði lent í 30. sæti á lista dóm­nefndar yfir þá sem metnir voru hæf­astir. Sá umsækj­andi er eig­in­maður fyrr­ver­andi sam­starfs­konu Sigríðar og vinnu­veit­anda til margra ára á lög­fræði­stof­unni Lex. Jafn­framt valdi Sigríður eig­in­konu Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem dóm­ara þótt hún hefði ekki verið í hópi þeirra umsækj­enda sem metnir voru hæf­astir. 

Að því er fram kom í dómi Hér­aðs­dóms vegna kæru­máls Ástráðs Har­alds­sonar, eins þeirra fimmtán sem metnir höfðu verið hæf­astir sem dóm­arar við Lands­rétt, var stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra „ekki í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra.“ Málinu var áfrýjað til Hæsta­réttar sem hefur ekki kveðið upp dóm, en Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, hefur boðað van­traust­s­til­lögu gegn dóms­mála­ráð­herra ef Hæsti­réttur stað­festir þá nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms að ráð­herra hafi ekki fylgt lögum við með­ferð máls­ins. 

Samkvæmt for­seta­úr­skurði mun Sigríður Andersen áfram fara með mál­efni dóm­stóla og rétt­ar­fars í nýrri rík­is­stjórn. Þá munu mál­efni er varða „náðun, sak­ar­upp­gjöf og upp­reist æru“ heyra undir dóms­mála­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, Sigríði Andersen.

Rekur harða útlendingastefnu

Á meðal ann­arra mála sem heyra undir dóms­mála­ráð­herra eru mál­efni útlend­inga, Útlend­inga­stofn­unar og Kæru­nefndar útlend­inga­mála. Sem dóms­mála­ráð­herra hefur Sigríður Andersen beitt sér fyrir hertri stefnu í útlend­inga­málum.

Að frum­kvæði hennar voru til dæmis sett lög þann 6. apríl síð­ast­lið­inn sem sviptu til­tekna hópa hæl­is­leit­enda rétt­inum til að fá rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun frestað vegna kæru til æðra stjórn­valds eða dóm­stóla. Rauði kross­inn á Íslandi og Lög­manna­fé­lagið vör­uðu við laga­breyt­ing­unum og töldu að með þeim væri réttar­ör­yggi hæl­is­leit­enda skert og mann­rétt­indum þeirra ógnað.

Í lok ágúst setti svo Sigríður Andersen reglu­gerð sem felur í sér að útlend­ingar eru sviptir rétt­inum til fram­færslu­fjár eftir að hæl­is­um­sóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Þá fólst í reglu­gerð­inni að ef hæl­is­leit­andi er frá ríki sem er á lista yfir örugg upp­runa­ríki og umsókn er metin „ber­sýni­lega til­hæfu­laus“ getur Útlend­inga­stofnun jafn­framt fellt niður alla þjón­ustu við við­kom­andi eftir að fram­kvæmd­ar­hæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir. Rauði kross­inn gagn­rýndi reglu­gerð­ina og benti á að vegna hennar gætu hæl­is­leit­endur lent milli steins og sleggju, án atvinnu­rétt­inda og fram­færslu­fjár, jafn­vel vikum saman meðan þeir biðu eftir að vera sendir úr landi. Undir lok síð­asta þings beittu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með Sigríði Andersen í far­ar­broddi, sér af mik­illi hörku gegn rétt­ar­bótum fyrir barna­fjöl­skyldur sem höfðu sótt um hæli á Íslandi. Aðrir flokkar á Alþingi sam­ein­uð­ust um laga­breyt­ing­arnar, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn greiddi atkvæði á móti þeim.

Sigríður Andersen fer einnig með mál­efni mann­rétt­inda í nýrri rík­is­stjórn, en undir þetta falla til dæmis tján­ing­ar­frels­is­mál og mál er varða frið­helgi einka­lífs. Sigríður hefur vakið athygli fyrir sjón­ar­mið sín er snúa að þessum rétt­indum. Nýlega lýsti hún því yfir í ávarpi á aðal­fundi Dóm­ara­fé­lags Íslands að hún teldi að í stjórn­ar­skrá Íslands væri tján­ing­ar­frels­inu skipað skör lægra en rétt­inum til einka­lífs. Þá furð­aði hún sig á að dóm­stólar gerðu grein­ar­mun á opin­berum per­sónum og óbreyttum borg­urum í dóma­fram­kvæmd sinni.

„Í dóma­fram­kvæmd und­an­farið er nokkuð gert með það hvort að sá sem telur að sér vegið sé svokölluð opin­ber per­sóna eða ekki. Hafa slíkar per­sónur þurft að búa við lak­ari rétt­ar­vernd en hinar. Þó hefur lög­gjaf­inn hvorki skil­greint hverjir það eru sem geta talist opin­berar per­sónur né gert þennan skils­mun í laga­texta,“ sagði Sigríður.

„Ég veit ekki hvenær „opin­berri per­sónu“ skaut fyrst upp í dómum hér á landi en ég er ekki viss um að þessi skils­munur sé sann­gjarn eða í þágu almenn­ings. Þetta er í öllu falli til umhugs­unar fyrir lög­gjafann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár