Hælisleitendur lenda „milli steins og sleggju“ án atvinnuréttinda og framfærslufjár

Ný reglu­gerð dóms­mála­ráð­herra felur í sér að hæl­is­leit­endur, sem almennt hafa ekki atvinnu­rétt­indi hér­lendis, eru sviptir rétt­inum til fram­færslu­fjár frá hinu opin­bera. Rauði kross­inn telur breyt­ing­arnar mjög íþyngj­andi fyrir fólk sem sækir um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Hælisleitendur lenda „milli steins og sleggju“ án atvinnuréttinda og framfærslufjár

Rauði kross­inn á Íslandi telur að ný reglu­gerð Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um rétt­indi hæl­is­leit­enda muni hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á stöðu þeirra hér­lendis. Hæl­is­leit­endur hafi almennt ekki atvinnu­rétt­indi á Íslandi og því sé veru­lega íþyngj­andi fyrir þá að vera sviptir rétt­inum til fram­færslu­fjár meðan þeir bíða brott­vís­unar í kjöl­far ákvörð­unar stjórn­valda um synjun hæl­is­um­sóknar. Biðin taki oft vikur eða mán­uði og hæl­is­leit­endur lendi þá milli steins og sleggju.

„Skilaboð stjórn­valda sem virð­ast eiga að kom­ast til skila með þess­ari skerð­ingu eru óljós en áhrifin verða að öllum lík­indum mjög nei­kvæð fyrir þá sem í hlut eiga, þ.e. umsækj­endur um alþjóð­lega vernd,“ segir Bryn­hildur Bolla­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins, í sam­tali við Stundina.

Eins og Stundin greindi frá fyrr í dag felur reglu­gerðin meðal ann­ars í sér að útlend­ingar eru sviptir rétt­inum til fram­færslu­fjár eftir að hæl­is­um­sóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Komi hæl­is­leit­andi frá ríki sem er á lista yfir örugg upp­runa­ríki og umsókn er metin „ber­sýni­lega til­hæfu­laus“ getur Útlend­inga­stofnun jafn­framt fellt niður alla þjón­ustu við við­kom­andi eftir að fram­kvæmd­ar­hæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir. 

Bryn­hildur Bolla­dóttirupp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins á Íslandi.

Bryn­hildur segir mjög íþyngj­andi fyrir ein­stak­linga að dregið sé úr fram­færslufé þeirra.

„Umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hafa almennt ekki atvinnu­rétt­indi svo þeir geta ekki aflað sér fjár, það gefur auga leið að að þannig er erfitt að lifa og það er óljóst hversu lengi fólk þarf að gera það,“ segir hún.

„Eftir að fólk fær synjun þá þarf það að bíða eftir að stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fram­kvæmi flutn­ing og tím­inn sem það tekur hefur verið að hlaupa á vikum og jafn­vel mán­uðum. Fólk getur ekki komið sér sjálft úr landi vegna pen­inga­leysis eða brott­vís­unar og end­ur­komu­banns. Það má því segja að það sé í raun fast milli steins og sleggju.“

Pólitísk ábyrgð stjórn­ar­meiri­hlut­ansSigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra starfar og und­ir­ritar reglu­gerðir í umboði stjórn­ar­meiri­hlut­ans á Alþingi. Meiri­hlut­inn sam­anstendur af Sjálf­stæð­is­flokknum, Bjartri fram­tíð og Viðreisn.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár