Stefnir í aðra vaxtahækkun

Verð­bólga er þrálát þrátt fyr­ir kóln­un í hag­kerf­inu. Raun­verð hús­næð­is lækk­ar skarpt.

Stefnir í aðra vaxtahækkun
Vaxtabreyting vofir yfir Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvörðun um breytingu stýrivaxta eftir tvær vikur. Mynd: Golli

Líklegt er að stýrivextir Seðlabanka Íslands verði hækkaðir 19. ágúst næstkomandi í þriðja skiptið í röð, að mati greiningadeildar Landsbankans. Ástæðan er að verðbólgan jókst í júlí og mældist 5,3%, langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans.

Meginvextir Seðlabankans eru núna 7,75% og voru hækkaðir um 0,25 prósentustig bæði í maí og mars, eftir tímabil lækkunar allt frá haustinu 2024. Fleiri seðlabankar hafa staðið frammi fyrir vaxtahækkunum. Evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25% í júní, sem var fyrsta hækkunin í þrjú ár. Á evrusvæðinu eru stýrivextirnir hins vegar 2,25%.

Stríð Bandaríkjanna og Íran orsök

Verðbólgan hefur verið þrálát allt frá því að birgðakeðjur röskuðust í Covid-faraldrinum og bólumyndun varð á húsnæðismarkaði eftir miklar vaxtalækkanir Seðlabankans í faraldrinum. Nú er helsti áhrifaþátturinn hækkandi flugfargjöld, sem orsakast ekki síst af stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran í Miðausturlöndum og afleiðingum þess.

Þó svo að tímabundin skattalækkun ríkisstjórnarinnar á eldsneyti renni út um komandi mánaðarmót …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Og íslenska krónan er kannski orsök stríðsátaka við Persaflóa eða hvað?
    Og peningastefnunefnd hyggst kannski koma á vopnahléi með vaxtahækkun?
    Nei, vonandi lætur enginn blekkja sig með slíkum ranghugmyndum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár