Góðar fréttir fyrir verðtryggðu lánin

Uppfærð spá Seðla­bank­ans gefur til kynna að verð­tryggð fast­eigna­lán verði áfram hag­stæð­ari en þau óverð­tryggðu. Vextir eru sögu­lega háir á bæði lána­form.

Góðar fréttir fyrir verðtryggðu lánin
Sammála um lækkun Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, sem Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður fyrir, hefur ein­róma lækkað stýri­vexti um 0,25% og niður í 7,25%, sem er enn hátt í sögu­legu sam­hengi. Mynd: Golli

Þrátt fyrir slæmar fréttir af hag­vaxt­ar­horfum er bæði stýri­vaxt­ar­á­kvörðun Seðla­bank­ans í dag og slakar horfur í hag­kerfi Íslands góðar fréttir fyrir þróun fast­eigna­lána. 

Höf­uð­stóll verð­tryggðra lána hækkar sjálf­krafa með verð­bólgu, í fyr­ir­komu­lagi sem þekk­ist varla fyrir fast­eigna­lán erlendis. Í nýjum Pen­inga­málum sem komu út í dag hjá Seðla­bank­anum er gert ráð fyrir að verð­bólga verði mun minni næstu tólf mán­uði en áður, og nokkru minni en gert var ráð fyrir í fyrri spá.

2,9% verðbólga

Þannig verður verð­bólgan 2,9% á fjórða árs­fjórð­ungi næsta árs, sam­kvæmt upp­færðri spá Seðla­bank­ans, sem þýðir gróf­lega að næstu 12 mán­uð­ina hækki höf­uð­stóll verð­tryggðra lána um sama hlut­fall, að frá­dregnum afborg­unum á höf­uð­stóll, sem eru mis­mun­andi eftir lengd og formi lána. Til sam­an­burðar er sama hækkun 4,3% núna og er því spáð að hún verði svipuð í nóv­em­ber­mán­uði, sem leiðir til hækk­unar verð­tryggðu lán­anna um sama hlut­fall jafnt og þétt í jan­ú­ar­mán­uði. Þetta jafn­gildir í raun vaxta­lækkun upp á 1,4% næsta árið fyrir þau sem hafa verð­tryggð lán, að óbreyttum nafn­vöxt­unum sem þó hafa hækkað jafnt og þétt á verð­tryggð lán síð­ustu miss­erin.

Til sam­an­burðar eru fastir vextir verð­tryggðra hús­næð­is­lána hjá Íslands­banka núna 4,75%, eftir hlé á  lán­veit­ingum í  kjöl­far vaxta­dóms Hæsta­réttar. Að með­al­tali hafa sömu vextir verið 3,6% hjá Íslands­banka frá árinu 2012 og eru verð­tryggðir vextir því sögu­lega háir. Gangi ný verð­bólgu­spá Seðla­banka Íslands eftir verða raun­veru­legir vextir verð­tryggðu lán­anna þá 7,65%, ef horft er til vaxta að við­bættri verð­trygg­ingu. Þótt það telj­ist háir vextir á fast­eigna­lán á heims­vísu er það þó lægra en vextir á óverð­tryggðum fast­eigna­lánum, þótt áhættan af verð­bólgu­á­falli sé í þeim til­fellum hjá lán­veit­and­anum en ekki lán­tak­and­anum. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Get ekki annað en hlegið. Já, verðtryggð lán geta verið hagstæð á meðan verðbólgan er lág. Hinsvegar ef verðbólgan fer yfir 4 til 5 prósent hallar hratt á lántaka og það er varanlegt. Verðbæturnar eru ekki greiddar upp hverju sinni, þær safnast upp sem einskonar auka höfuðstóll sem ber einnig vexti. Í guðana bænum verið ekki að fegra þetta lánaform. Það ber með sér mikla áhættu auk þess sem kerfislæg áhrif verðtryggðra lána ýtir undir verðbólgu (verðbætur eru peningaprentun fyrir bankana, einskonar ný útlán án frekari samninga), ýtir undir hærra fasteignaverð (leiða til hærri tilboða því greiðslumatið er í raun falskt og metur ekki langtímaáhrif verðbólguskota). Þar fyrir utan er vonlaust fyrir lántaka að gera heilbrigt eigið greiðslumat við eldhúsborðið (flókin fjármálaafurð) og þessi lán standast því í raun ekki lög um neytendavernd á lánamarkaði EES þó íslenskir dómstólar hafi í raun hunsað EES reglur með útúrsnúningum í þágu íslenskra útlánsstofnanna.
    0
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Já, ég get ekki skilið hversvegna sumt fólk er að fegra þetta lánaform. Verðtrygging er hvergi á húsnæðislán í Evrópu. Og, eins og þú segir eru verðbætur peningaprentun fyrir bankana og býr til nýjan auka höfuðstól lána til hækkunar lánsins og hærri greiðslubyrði fyrir lántakendur.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár