Húsnæðisvextir hækkaðir í 9,44%

Arion banki til­kynnir vaxta­hækkun.

Húsnæðisvextir hækkaðir í 9,44%
Húsnæði Íbúða­verð hefur hækkað um 2,15% á síð­ustu 12 mán­uðum, en verð­bólga verið um 5 pró­sent. Mynd: Golli

Hús­næð­is­lána­vextir halda áfram að hækka eftir að Seðla­bank­inn til­kynnti um stýri­vaxta­hækkun upp á 0,25 pró­sentu­stig upp í 7,75% í síð­ustu viku.

Óverð­tryggðir vextir hús­næð­is­lána Arion banka hafa í dag verið hækk­aðir í 9,44%, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá bank­anum. Í gær voru þeir 9,19% og í mars 8,94%.

Fari veð­hlut­fallið yfir 50% hækka vext­irnir upp í 10,44% fyrir þann hluta láns­ins.

Enn er hægt að fá lán á föstum vöxtum til þriggja ára á lægri vöxtum, eða 8,75%.

Hús­næð­is­lána­vextir á Íslandi eru afar háir í sam­an­burði við nágranna­lönd. Þeir eru nálægt vöxtum í Víetnam, Kúbu, Indónesíu og Bólivíu. Aðeins tvö lönd í Evrópu eru með hærri vexti á hús­næð­is­lánum, Rússland og Úkraína, en þau eiga í stríðs­á­tökum.

Verð­tryggðir vextir hjá Arion banka eru 4,64% upp að 50% veð­setn­ing­ar­hlut­falli, en þá hækka þeir í 5,89%. Höf­uð­stóll láns­ins hækkar með verð­bólg­unni í sama hlut­falli og vísi­tala neyslu­verðs í hverjum mán­uði. Verð­tryggðir vextir hafa hækkað mikið síð­ustu ár.

Á sama tíma og vextir hækka er íbúða­verð að lækka að raun­virði. Þannig hefur verð fast­eigna hækkað um 2,15% síð­ustu 12 mán­uði, en verð­bólgan verið 5,1%.

Verð fast­eigna er hins vegar ekki notað við útreikn­ing verð­bólg­unnar, heldur er stuðst við „reikn­aða húsa­leigu“, sem byggir á leigu­verði. Það hækk­aði um 0,6% í apr­íl­mán­uði einum og sér. 

Mikil kólnun hefur orðið á fast­eigna­mark­aði að und­an­förnu og safn­ast upp óseldar íbúðir. Samkvæmt Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun var 4.341 íbúð óseld á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl, eða 900 fleiri en á sama tíma í fyrra, og gekk hæg­ast að selja dýrar, nýjar íbúðir í fjöl­býl­is­húsum, svo sem á Heklu­reitnum, Orku­reitnum og í Stefn­is­vogi í Reykja­vík.

Hús­næð­is­lána­vextir Arion banka hafa hækkað frá því í fyrra, þegar óverð­tryggðir, breyti­legir vextir fóru niður fyrir 8,94% þegar verð­bólga tók að hjaðna eftir eft­ir­köst Covid-far­ald­urs­ins. Hæst fóru þeir í 10,89% frá ágúst 2023 til sept­em­ber 2024. Þá voru verð­tryggðir vextir hins vegar aðeins 2,94%. Á árinu fyrir Covid-far­ald­ur­inn, 2019, voru óverð­tryggðir, breyti­legir vextir aðeins um 5% hjá Arion banka, en árin þar áður frá 5,6% til 7,05%.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár