Fara vextir núna „að húrra niður“?

„Alveg hörmu­legt“ að verð­bólga hafi hald­ist yfir við­miði í fimm ár. Vextir á Íslandi yfir sjö pró­sent, en frá tvö pró­sent í við­mið­un­ar­löndum.

Fara vextir núna „að húrra niður“?
Ásgeir Jónsson Vísar aftur til verka­lýðs­fé­lag­anna um fram­tíð stýri­vaxta. Mynd: Golli

„Það er það sem ég býst við, að verð­bólga muni hjaðna hratt,“ sagði Þórarinn G. Pét­urs­son vara­seðla­banka­stjóri við kynn­ingu á vaxta­á­kvörðun seðla­bank­ans í morgun. Þar var kynnt óvænt 0,25% stýri­vaxta­lækkun þrátt fyrir háa verð­bólgu, sem kemur til vegna þess sem pen­inga­stefnu­nefndin kallar „raun­veru­lega kólnun í kerf­inu“. Þessar slæmu fréttir fyrir hag­kerfi Íslands gætu á móti opnað á mögu­leik­ann á að veru­leiki hús­næð­is­eig­enda batni til muna næsta árið.

Á fund­inum gekkst Þórarinn við því að það væri „alveg hörmu­legt“ að verð­bólga hefði verið yfir 2,5% við­miði bank­ans í fimm ár. 

„Er þetta ásætt­an­legur tími? Auðvitað ekki. Fimm ár eru nátt­úr­lega … Þetta er alveg hörmu­legt. Það end­ur­spegl­ast því að við erum með yfir sjö pró­sent vexti: Önnur lönd eru með vexti í ein­hverju tvö, þrjú, mesta lagi fjögur pró­sent. Það er þá birt­inga­mynd yfir því að við erum frekar súr yfir þessu,“ sagði hann, en stýri­vextir eru nú 7,25%.

Vegna vaxta­hækk­ana Seðla­bank­ans síð­ustu ár hafa óverð­tryggðir hús­næð­is­lána­vextir farið vel yfir 10 pró­sent í sumum til­fellum, sem hefur leitt til þess að lang­flest ný hús­næð­is­lán hafa verið verð­tryggð.

Hagkerfið kólnar

Þórarinn G. Pét­urs­son Vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu varar við því að treysta á að vextir húrri niður, en það sé þó mögu­legt.

Vegna ýmissa áfalla í hag­kerfi Íslands er nú kólnun yfir­vof­andi, sem mun þýða minni hag­vöxtur en á móti lægri verð­bólga, sem getur leitt til örrar vaxta­lækk­unar hjá Seðla­bank­anum. Horfur um hag­vöxt hafa verið „færðar niður um tvær pró­sentur í heild“ í ár og næsta ári, sagði Þórarinn og bætti við að „atvinnu­leysi [verði] hálfu pró­sentu meiri á næsta ári og ári þar á eftir.“

Aukið atvinnu­leysi og kólnun almennt leiðir til þess að „um mitt næsta ár er verð­bólgan hálfu pró­sentu minni en við spáðum í ágúst,“ sagði Þórarinn.

Eins og Heim­ildin fjall­aði um í morgun leiðir þetta til þess að ver­tryggð lán verða hag­stæð­ari en áður. Þau hafa verið ódýr­ari en óverð­tryggð lán frá árinu 2023.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár