Óverðtryggðir vextir lækkaðir undir 8 prósent

Í fyrsta sinn í rúm­lega þrjú ár fara óverð­tryggðir vextir hús­næð­is­lána Íslands­banka undir 8 pró­sentin.

Lækka vexti
Lækka vexti Jón Guðni Ómarsson er banka­stjóri Íslands­banka. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Í kjöl­far stýri­vaxta­lækk­unar Seðla­banka Íslands hefur Íslands­banki til­kynnt um vaxta­lækkun. Með henni fara óverð­tryggðir hús­næð­is­lána­vextir, sem eru fastir til 5 ára, niður um 0,2% í 7,95%. Vext­irnir hafa ekki verið lægri frá 1. júlí 2022, en þá höfðu þeir hækkað veru­lega eftir að hafa farið niður í 4,05% sum­arið 2020.

Íslands­banki býður þar með lægstu óverð­tryggðu vexti allra lán­veit­enda á hús­næð­is­lána­mark­aði. Lands­bank­inn hefur ekki kynnt um vaxta­breyt­ingar, en var sömu­leiðis með 8,15% vexti fasta til fimm ára.

Verð­tryggðir, fastir vextir eru lækk­aðir um 0,2% og fara niður í 4,55%, en fyrir stýri­vaxta­breyt­ingar vegna Covid-far­ald­urs­ins voru þeir 3,6%. Því eru þeir enn háir sögu­lega séð.

Eins og kom fram í pen­inga­málum Seðla­banka Íslands í morgun eru fleiri lán­tak­endur farnir að taka óverð­tryggð hús­næð­is­lán, heldur en þau sem greidd eru upp. Þó er enn yfir­gnæf­andi fjöldi lána á verð­tryggðum vöxtum.

Hrein ný útlánÓverð­tryggðu lánin virð­ast eiga end­ur­komu.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár