Fá hjálp foreldra til að kaupa íbúð

Greiðslu­byrði og fast­eigna­verð eru sögu­lega há og lang­flest­ir kaupa fyrstu íbúð með að­stoð for­eldra sinna eða annarra ætt­ingja, sam­kvæmt könn­un með­al fast­eigna­sala.

Fá hjálp foreldra til að kaupa íbúð
Fasteignir Sögulega séð er mun dýrara að borga af húsnæði og kaupa það heldur en á fyrri árum. Mynd: Golli

Fasteignasalar svara því til í 80% tilfella að fyrstu kaupendur fasteigna fái aðstoð foreldra sinna eða annarra ættingja, samkvæmt vísbendingum úr rannsókn Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS).

Tölurnar eru fengnar úr spurningakönnunum meðal fasteignasala sem HMS hefur sent út frá því í júní í fyrra og birtir í nýrri mánaðarskýrslu sinni í dag. Ein spurninganna er hvaða fjármögnunarleið fyrstu kaupendur hafi farið í viðskiptum sem fasteignasalarnir hafa séð um. Á meðan 23% hafa tekið hlutdeildarlán, sem er nýlegt úrræði stjórnvalda, hafa 79% fengið „aðstoð frá foreldrum og ættingjum“. Svipað hlutfall, eða 80%, nota eigið fé. Þá segja 73% fasteignasala að lánastofnun hafi komið til með fjármögnun við fyrstu kaup í viðskiptum sem þeir hafa séð um.

Aðferðafræði HMS er háð þeim annmörkum að um viðhorfskönnun er að ræða í gegnum Félag fasteignasala, sem telur 330 félagsmenn, og svarhlutfallið var 21%. Því er ekki um beinar upplýsingar um fjármögnun að ræða. …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ekkitapaði ég sparnaði mínum hjá bankanum mínum þrátt fyrirbankahrunið á sínum tímaendaereg búin að vera fastur viðskiptavinur hjaþeim siðan1954 og alveg fram á þennan dag
    0
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Þess vegna segi ég já til að sjá 29. ágúst
    1
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Það er hreinlega ekki annað í boði!
      0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Hvers vegna? Til þess að undirgangast ríkisábyrgð á innstæðutryggingum að hætti Icesave sem við höfnuðum í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2011? Þykir þér þú hafa heimild til að virða niðurstöðu þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu að vettugi?

      https://www.youtube.com/live/DjDT1dvgXn0?t=5297s
      https://www.youtube.com/watch?v=S-_phrsvbPs&t=359s
      https://icelandmonitor.mbl.is/opeds/opinion/2026/08/19/would_iceland_s_icesave_victory_remain_good_law_aft/
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

Keyptu íbúð en geta ekki flutt inn vegna hárra afborgana
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Keyptu íbúð en geta ekki flutt inn vegna hárra af­borg­ana

Páll Krist­inn Stef­áns­son festi kaup á fyrstu íbúð í sum­ar ásamt kær­ustu sinni. Þau hafa bú­ið hjá for­eldr­um Páls und­an­far­ið á með­an þau hafa safn­að pen­ing. Par­ið var spennt að flytja í eig­ið hús­næði en hafa ekki efni á því. „Það er ekk­ert smá svekk þeg­ar mað­ur er bú­inn að kaupa sér íbúð að hafa ekki tök á að búa í henni,“ seg­ir hann.
Skráði sig í sambúð með vini sínum til að standast greiðslumat
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sín­um til að stand­ast greiðslu­mat

Hann­es Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sín­um ár­ið 2021. Hvor­ug­ur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vin­un­um gekk vel að búa sam­an þar til báð­ir eign­uð­ust kær­ust­ur. Mán­uði eft­ir að þær fluttu inn seldi Hann­es sinn hlut til vin­ar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár