Aðili

Landsbankinn

Viðskipti

Lands­bankinn hagnaðist um 33 milljarða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bankans jókst um 3,7 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og nam 33,1 milljarði. Stjórn­endur bankans hafa áhyggjur af mögulegu útlána­tapi vegna versnandi stöðu byggingar­fyrirtækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hægari sölu íbúða. Ríkis­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæplega 35 milljarða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
Viðskipti

Vaxta­hækkanir lána­stofnana: „Þetta er bara svakalegt og hefur mikil áhrif á öll heimili“

Kona sem er 62 ára gömul segir frá því hvernig greiðslu­byrðin af óverðtryggða húsnæðis­láninu hefur hækkað um tæplega helming á einu ári. Konan segist ráða við afborg­an­irnar en að það gildi ekki um alla. Hún segist frekar selja íbúðina og flytja úr landi en að taka verð­tryggt lán sem hún segir að beri 12 til 13 prósenta vexti í raun í ljósi verð­bólgunnar í landinu.
ViðskiptiÍslandsbankasalan

Einungis Íslands­banki svarar hvort lánað hafi verið í einka­væðingu bankans

Eitt af því sem er til rann­sóknar hjá fjármála­eftirliti Seðla­banka Íslands eru mögulegar lánveitingar frá sölu­aðilum hluta­bréfanna í Íslands­banka til kaup­endanna. Einungis einn af íslensku sölu­aðilunum fimm svarar því til að hann hafi mögulega veitt lán fyrir hluta­bréfunum. Forstjóri Banka­sýslunnar, Jón Gunnar Jónsson, hefur sagt að í einhverjum tilfellum hafi verið lánað.
ViðskiptiÍslandsbankasalan

Seðla­banki Íslands flýtir rannsókn á útboðinu í Íslands­banka

Banka­sýsla ríkisins setti fram gagnrýni á sölu­meðferð hluta­bréfa í Íslands­banka. Gagnrýnin beindist að þeim bönkum og verðbréfa­fyrirtækjum sem seldu hluta­bréfin þó enginn einn aðili hefði verið nefndur. Talsmenn þessara fyrir­tækja kjósa að tjá sig ekki um hana utan einn, verðbréfa­fyrirtækið Fossar markaðir, sem undir­strikar að félagið hafi fylgt lögum og reglum í útboðinu. Seðla­bankinn segist ætla að flýta rann­sókninni á útboðinu.
ViðskiptiÍslandsbankasalan

Banka­sýslan seldi verðbréfa­fyrirtækjum sjálfdæmi við sölu hluta­bréfa í Íslands­banka

Forstjóri Banka­sýslu ríkisins, Jón Gunnar Jónsson, segir að treysta þurfi bönkum og verðbréfa­bréfa­fyrirtækjum sem sjá um útboð á hluta­bréfum fyrir íslenska ríkið. Fjár­máleftirlit Seðla­banka Íslands rannsakar nú þá aðila sem sáu um útboð ríkisins. Út frá svörum banka­sýslunnar er ljóst að bankarnir og verðbréfa­fyrirtækin stýrðu því hverjir fengu að kaupa hlutabréf ríkisins í Íslands­banka.

Mest lesið undanfarið ár