Aðalmeðferð fer fram sjö árum eftir að hlutur ríkisbanka í Borgun var seldur á undirverði

Yfir­mats­menn í Borg­un­ar­mál­inu skil­uðu mats­gerð í apríl. Þeir segja að árs­reikn­ingur Borgunar fyrir árið 2013 hafi ekki inni­haldið upp­lýs­ingar um til­vist val­réttar Borgunar í Visa Europe. Lands­bank­inn telur sig hlunn­far­inn um tæpa tvo millj­arða.

Nokkur fjöldi fólks mótmælti fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans í janúar 2016 vegna Borgunarmálsins. Ári síðar stefni bankinn kaupendum að hlut hans í Borgun.
Nokkur fjöldi fólks mót­mælti fyrir utan höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans í jan­úar 2016 vegna Borg­un­ar­máls­ins. Ári síðar stefni bank­inn kaup­endum að hlut hans í Borgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í hálfs­árs­upp­gjöri Lands­bank­ans, sem birt var í lok síð­asta mán­aðar, kom fram að stefnt sé að því að aðal­með­ferð í Borg­un­ar­mál­inu svo­kall­aða, þar sem rík­is­bank­inn telur sig hlunn­far­inn um tvo millj­arða króna, muni fara fram í jan­úar 2022. Þá verða liðin rúm sjö ár frá því að Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu á und­ir­verði og fimm ár frá því að mál var höfðað gegn gegn Borgun hf., fyrr­ver­andi for­stjóra Borg­unar Hauki Odds­syni, BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. vegna þessa.

Borgun er raunar ekki til lengur í þeirri mynd sem það var þegar fyr­ir­tækið var selt. Í fyrra var gengið frá sölu þess til alþjóð­lega greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Salt Pay Co Ltd., sem er með skráð aðsetur á Caymaneyjum.

Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, sem keypti 31,2 pró­sent eign­ar­hlut Lands­bank­ans í nóv­em­ber 2014, var á meðal selj­enda. Upp­haf­lega greiddi félagið 2,2 millj­arða króna fyrir hlut­inn en rúm­lega tvö­fald­aði þá fjár­fest­ingu á tæpum sex árum með arð­greiðslum, söl­unni til Salt Pay og með því að fá bréfi í félagi sem heldur á bréfum í Visa Inc.

Grunsemdir um að virði hafi verið falið

Kaupin á hlut Lands­bank­ans í Borgun áttu sér þann aðdrag­anda að maður að nafni Magnús Magn­ús­­son, með heim­il­is­­festi á Möltu, setti sig í sam­­band við rík­­is­­bank­ann og fal­að­ist eftir eign­­ar­hlutnum fyrir hönd fjár­­­festa.

Á meðal þeirra sem stóðu að kaup­enda­hópnum voru þáver­andi stjórn­­endur Borg­un­­ar. Þrír stærstu aðil­­arnir sem stóðu að Eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Borgun voru gamla útgerð­­ar­­fyr­ir­tækið Stál­­skip, félagið P126 ehf. (eig­andi er félag í Lúx­em­borg og eig­andi þess er Einar Sveins­­son), og félagið Pétur Stef­áns­­son ehf. (Í eigu Pét­­urs Stef­áns­­son­­ar).

[adspot]Salan fór fram á bak við luktar dyr og hlut­ur­inn var ekki aug­lýstur til sölu.

Fljót­lega vökn­uðu grun­semdir um að Borgun væri mun verð­mæt­ara fyr­ir­tæki en árs­reikn­ingar þess gáfu til kynna, sér­stak­lega vegna þess að á meðal eigna Borg­unar var hlutur í Vísa Europe, sem var keyptur af Visa Inc. skömmu eftir að kaupin gengu í gegn. Þessi eign­­ar­hlutur var marga millj­­arða króna virði en hafði ekki verið metin þannig við söl­una á eign­­ar­hlut Lands­­bank­ans. Enn fremur var ekki gerður neinn fyr­ir­vari í kaup­­­samn­ingnum um við­­­bót­­­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mög­u­­­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc., en slíkur fyr­ir­vari var til að mynda verið gerður þegar Arion banki keypti hlut Lands­bank­ans í öðru greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki sem átti hlut í Visa Europe, Valitor.

Mikill hagnaður og háar arðgreiðslur

Næstu árin hagn­að­ist Borgun veru­lega. Greiddar voru út 800 millj­ónir króna í arð til eig­enda á árinu 2015 vegna frammi­stöðu fyrra árs. Ári síðar nam arð­greiðslan 2,2 millj­örðum króna og árið 2017 voru greiddir út 4,7 millj­arðar króna vegna frammi­stöðu árs­ins 2016, þegar hlut­irnir í Visa Europe voru seldir.

Á rúmum þremur árum fengu fjár­fest­arnir sem keyptu 31,2 pró­sent hlut rík­is­bank­ans Lands­bank­ans því allt útlagt kaup­verð til baka og græddu til við­bótar 218 millj­ónir króna í reiðufé. Árið 2017 var hagn­að­ur­inn svo 350 millj­ónir króna en engin arður greiddur út.

Ofan á það áttu þeir auð­vitað enn hlut­inn í Borgun.

Halla fer undan fæti og Borgun selt

Á árunum 2018 og 2019 fór rekst­ur­inn hins vegar að versna til muna. Sam­an­lagt tap á þeim árum nam um tveimur millj­örðum króna og á fyrri hluta árs­ins 2020 var tap­ið 635 millj­ónir króna.

Á því ári sam­þykktu svo eig­endur 96 pró­sent hluta­fjár í Borgun, þar á meðal stærsti eig­and­inn Íslands­banki og Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, að selja hluti sína til alþjóð­lega greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Salt Pay. Formlega var gengið frá söl­unni 7. júlí í fyrra.

Kaup­verðið var sagt trún­að­ar­mál en Frétta­blaðið greindi frá því viku síðar að það hafi verið sam­tals 27 millj­ónir evra, um 4,3 millj­arðar króna á þeim tíma. Það hafði lækkað um átta millj­ónir evra, um 1,3 millj­arða króna, frá því að kaup­samn­ingur var und­ir­rit­aður 11. mars 2020. Helsta ástæða þess að verðið lækk­aði voru áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins á starf­semi Borg­un­ar. Sé það rétt er hlutur Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar í kaup­verð­inu ætti sam­kvæmt því að vera um 1,3 millj­arðar króna.

Áður en að gengið var frá söl­unni á Borgun var hlutafé í félag­inu lækk­að. Sú lækkun fór fram þannig að for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc, sem Borgun eign­að­ist árið 2016 við að selja hlut sinn í Visa Europe, voru færð inn í félagið Borg­un-VS ehf. Frá­far­andi eig­endur Borg­unar eign­uð­ust svo það félag. Virði for­gangs­hluta­bréf­anna er sagt vera rúm­lega 3,1 millj­arður króna í árs­hluta­upp­gjöri Íslands­banka. Hlutur Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar í Borgun-VS ehf. ætti því að vera um eins millj­arðs króna virði.

[adspot]Því ætti félagið að hafa fengið um 2,3 millj­arða króna út úr söl­unni. Samtals hefur Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun því breytt tæp­lega 2,2 millj­arða króna fjár­fest­ingu sem ráð­ist var í haustið 2014 í 4,5 millj­arða króna. Á tæpum sex árum hefur fjár­fest­ingin tvöld­ast í krónum talið, og fjár­fest­arnir leyst út þorra þeirrar virð­is­aukn­ingar í formi arð­greiðslna og sölu­and­virðis. Einungis hlut­ur­inn í Borgun-VS er enn bund­inn í bréfum.

Matsmenn styðja málatilbúnað Landsbankans

Í nóv­em­ber 2016 birti Rík­­is­end­­ur­­skoð­un skýrslu um fjöl­margar eigna­­sölur Lands­bank­ans á árunum 2010 til 2016 og gagn­rýndi þær harð­­lega. Á meðal þeirra er salan á hlut í Borg­un. Tíu dögum síðar var Stein­þóri Páls­syni, banka­stjóra Lands­bank­ans, sagt upp störf­um. Sú ákvörðun var rakin beint til Borg­un­ar­máls­ins. Nokkrum vikum síðar, í jan­úar 2017, höfð­aði Lands­bank­inn mál gegn Borgun hf., þáver­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. Bankinn taldi sig blekktan og hlunn­far­inn við söl­una á hlut sínum í Borgun og vill fá 1,9 millj­arða króna greiddar frá stefndu auk vaxta.

[links]Haukur Oddsson, sem var for­stjóri Borgunar þegar kaupin áttu sér stað og er einn þeirra sem Lands­bank­inn stefndi, hætti störfum hjá Borgun í októ­ber 2017.

Málið hefur svo mallað í kerf­inu árum saman. Matsmenn sem lögðu mat á árs­reikn­ing Borgunar hf. fyrir árið 2013, og skil­uðu mats­gerð haustið 2019, komust að þeirri nið­ur­stöðu að upp­lýs­ingar um til­vist val­réttar um kaup og sölu á eign­ar­hlut Borgunar í Visa Europe Ltd til Visa Inc., skil­mála hans og mögu­legar greiðslur til Borgunar á grund­velli hans hafi verið mik­il­vægar við gerð, fram­setn­ingu og þar af leið­andi end­ur­skoðun árs­reikn­ings Borgunar árið 2013. Þá hefði Borgun átt að upp­lýsa um eign­ar­hlut sinn í Visa Europe Ltd. og að félagið væri aðili að Visa Europe Ltd. í árs­reikn­ingnum.

Borgun hefði jafn­framt átt að gera grein fyrir val­rétt­inum þar í sam­ræmi við ákvæði alþjóð­legs reikn­ings­skila­stað­als og upp­lýsa um óvissu um hann í skýrslu stjórnar sam­kvæmt lögum auk þess sem að mats­menn telja að árs­reikn­ingur Borgunar fyrir árið 2013 hafi ekki upp­fyllt allar kröfur laga um árs­reikn­inga og alþjóð­legra reikn­ings­skila­staðla.

Yfirmatsmenn telja líka að upplýsingar hafi vantað

Við fyr­ir­töku máls­ins 24. jan­úar 2020 lagði Borgun og ónefndur annar stefndi fram beiðni um dóm­kvaðn­ingu yfir­mats­manna.

Í nýbirtu hálfs­árs­upp­gjöri Lands­bank­ans kemur fram að þeir hafi skilað mats­gerð í apríl síð­ast­liðnum. Yfir­mats­menn töldu meðal ann­ars að „upp­lýs­ingar um til­vist og skil­mála val­rétt­ar­ins hefðu getað talist mik­il­vægar við gerð, fram­setn­ingu og end­ur­skoðun árs­reikn­ings félags­ins fyrir árið 2013, að sú skylda hafi hvílt á stjórn­endum félags­ins að greina frá til­vist og eftir atvikum skil­málum val­rétt­ar­ins í skýr­ingum í árs­reikn­ingnum og að árs­reikn­ing­ur­inn hafi ekki upp­fyllt allar kröfur um upp­lýs­inga­gjöf um eign­ar­hlut félags­ins í Visa Europe Ltd. og/eða val­rétt­inn sam­kvæmt þágild­andi lögum og reglum.“

Í árs­hluta­upp­gjör­inu kemur enn fremur fram að til standi að aðal­með­ferð í mál­inu fari fram í jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár