Landsbankinn hagnaðist um 29 milljarða og ætlar að greiða 14 milljarða í arð

Rekstur Lands­bankans gekk betur á síðasta ári en árið þar á undan og hafa tekjur bankans af rekstrinum aukist umtals­vert umfram aukinn kostnað. Til skoðunar er að bankinn greiði sérstaka arðgreiðslu í ár en bankaráð hyggst gera tillögu um 14,4 milljarða arðgreiðslu.

Stjórinn
Stjórinn Lilja Björk Ein­ars­dóttir stýrir Lands­bank­anum.

Lands­bankinn hagnaðist um 28,9 milljarða á síðasta ári og ætlar sér að greiða 14,4 milljarða í arð til ríkisins. Þetta kemur fram í tilkynningu um niður­stöðu uppgjör bankans fyrir árið. Það er miklu meiri hagnaður en árið áður, þegar bankinn skilaði 10,5 milljarða hagnaði. Samkvæmt tilkynningu bankans eru flestir mæli­kvarðar í rekstrinum betri nú en árið á undan. 

Verði arðgreiðslan samþykkt í bankaráði, sem verður að teljast líklegt, þýðir það að arðgreiðslur Lands­bankans til eigenda – sem er að lang­stærstum hluta íslenska ríkið – komi til með að nema samtals 160 milljörðum króna á árabilinu 2013-2022. Bankaráð er líka með til skoðunar að leggja til að greiddur verði út sérstakur arður á árinu 2022.

Rekstrar­tekjurnar voru 62,3 milljarðar króna á árinu, sem er hækkun um 24 milljarða. Rekstrar­gjöldin voru aftur á móti áþekk á milli ára; hækkuðu úr 25,6 milljörðum í 25,9 milljarða. Þetta leiðir af sér að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár