Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en stjórnendur áhyggjufullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Útlánaáhætta
Útlána­á­hætta Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir háa vexti og hæg­ari sölu íbúða geta gengið hratt á eigið fé bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja. Mynd: Landsbankinn

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33,1 millj­arð króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, sam­an­borið við 29,5 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra. Hagn­að­ur­inn jókst því um 12,5 pró­sent milli ára, sam­kvæmt árs­hluta­reikn­ingi bank­ans sem birtur var í dag.

Á þriðja árs­fjórð­ungi einum nam hagn­að­ur­inn 11,1 millj­arði króna, nær óbreytt frá sama tíma­bili í fyrra. Hagnaður fjórð­ungs­ins dróst þó lít­il­lega saman, um 79 millj­ónir króna.

33.100 millj­ónir
Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33,1 millj­arð króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, sam­an­borið við 29,5 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir afkom­una góða þrátt fyrir erf­iðar aðstæður í efna­hags­líf­inu. „Afkoma Lands­bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins er góð og end­ur­speglar traustan og stöðugan rekstur í krefj­andi efna­hags­um­hverfi,“ segir hún í afkomutil­kynn­ingu bank­ans.

Versnandi staða byggingarfyrirtækja

Þótt hagn­aður Lands­bank­ans hafi auk­ist hefur bank­inn jafn­framt hækkað mat sitt á mögu­legu tapi vegna lána sem ekki fást end­ur­greidd að …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár