Hvernig græddi Landsbankinn 38 milljarða?

Lang­stærstur hluti hagnaðar Lands­bankans á síðasta ári er munurinn á innheimtum vöxtum af viðskipta­vinum og þeim vöxtum sem bankinn greiðir sjálfur. Þessi hreini vaxta­munur skilaði meiri tekjum í fyrra en árið áður.

Stærsti þátturinn í 38 milljarða króna hagnaði Lands­bankans eru hreinar vaxta­tekjur, það er mismunurinn á þeim vöxtum sem bankinn innheimtir af útlánum og þeim sem hann greiðir af innlánum og annarri fjár­mögnun. Á árinu 2025 námu þessar tekjur 62,1 milljarði króna og jukust verulega milli ára. 

Vaxta­tekjur vega lang­þyngst í tekju­uppbyggingu bankans; samkvæmt mati S&P Global Ratings koma um 77 prósent af heildar­tekjum Lands­bankans af innheimtum vöxtum. Matið var unnið út frá gögnum fyrstu níu mánaða ársins, en í fjárfesta­kynningu bankans nú er hlut­fallið sagt 73 prósent. 

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðlaugur Jóhannsson skrifaði
    Bánkarnir. íslensku. eru Rekknir '' Einsog . Spilavíti '' aff 1 Klassa.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár