Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða

Lands­bankinn stefnir að því að greiða eiganda sínum, íslenska ríkinu, 19 milljarða króna í arð vegna velgengni síðasta árs. Hagnaðurinn hækkar lítillega á milli ára.

Hagnaður Lands­bankans á síðasta ári nam 38 milljörðum króna, saman­borið við 37,5 milljarða króna árið áður, samkvæmt ársuppgjöri bankans sem birt var í dag. 

Í tilkynningunni kemur fram að arðsemi eigin fjár fyrir árið hafi verið 11,6 prósent, sem er í takt við fyrri ár. Bankaráð Lands­bankans hyggst leggja til við aðalfund að greiða um 19 milljarða króna í arð til hluthafa, sem nemur um helmingi af hagnaðinum. 

Þá er banka­ráðið með til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðslu fyrir aðal­fundinn.

Í tilkynningunni kemur fram að hreinar vaxta­tekjur á árinu hafi numið 62,1 milljarði króna og hreinar þjónustu­tekjur 12,6 milljarðar króna. Útlán jukust um nær 77 milljarða króna frá áramótum. Eiginfjár­hlutfall bankans var 24,8 prósent í lok árs, sem er talsvert yfir lágmarks­kröfum fjármála­eftirlitsins.

Lilja Björk Einars­dóttir, banka­stjóri Lands­bankans, segir í tilkynningunni að árangur ársins endur­spegla traustan rekstur og að bankinn stefni að því að tryggja verðmæta­sköpun fyrir viðskipta­vini og hluthafa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár