Málningin flagnar í lauginni í Washington

Banda­ríkja­for­seti lét mála botn laug­ar­innar við Lincoln minn­is­merkið í Washington bláan. Næst komu þör­ung­arnir aftur og svo byrj­aði mán­ingin að flagna.

Málningin flagnar í lauginni í Washington
Tjörnin í Washington Donald Turmp lof­aði því fyrir kjör sitt sem Banda­ríkja­for­seti að hreinsa fenið í Washington. Þá ákvað hann að láta mála botn tjarn­ar­innar við Lincoln minn­is­merkið, án útboðs. Mynd: AFP

Bláa máln­ingin er byrjuð að flagna af laug­ar­botn­inum á frægu tjörn­inni við Lincoln minn­is­merkið í Washington eftir end­ur­bætur sem Donald Trump for­seti beitti sér vegna 250 ára afmæl­is­há­tíðar sjálf­stæðis Banda­ríkj­anna.

Ljós­mynd­ari AFP sá í gær starfs­menn dæla bútum af blárri máln­ingu úr tjörn­inni, ásamt grænum þör­ungum sem hafa blómstrað síðan nýlega var fyllt á hann aftur og gefa vatn­inu mýr­ar­lit.

Vanda­málið með máln­ing­una sem flagnar virð­ast vera útbreitt í 610 metra langri tjörn­inni. Fjöl­miðlar og aðrir á sam­fé­lags­miðlum hafa fjallað um þetta við­var­andi vanda­mál und­an­farna daga.

Flagn­andi máln­ingSíðustu daga hafa þör­ungar verið hreins­aðir úr laug­inni, ásamt bláum máln­ing­ar­flygsum.

Á einum stað hafði ein­hver skrifað orðið „TRUMP“ í græna slorið á botni speg­ils­ins, þar sem bláa máln­ingin er flekk­ótt.

Verk­efnið að mála speg­il­inn aftur, sem banda­rískir fjöl­miðlar hafa greint frá að hafi kostað um 14 millj­ónir dala, er hluti af við­leitni Trumps til að setja svip sinn á Washington með hlutum eins og dans­sal í Hvíta hús­inu og risa­stórum boga við Potomac-ána.

Að skipun Trumps var langi, rétt­hyrnda „spegla­laugin“, sem er hönnuð til að end­ur­spegla Washington-minn­is­merkið á National Mall nálægt Lincoln-minn­is­merk­inu, tæmd og máluð í lit sem hann kallar „bláan eins og banda­ríski fán­inn“.

Þetta er helgur staður í Washington: Það var á tröppum Lincoln-minn­is­merk­is­ins sem mann­rétt­inda­leið­tog­inn Martin Luther King Jr. flutti sína frægu ræðu „Ég á mér draum“ árið 1963 fyrir framan nokkur hund­ruð þús­und manns sem höfðu safn­ast saman í kringum laug­ina.

Þann 4. júlí munu Banda­ríkin fagna því að 250 ár verða frá sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingu þeirra frá Bret­landi.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þetta er eins og táknmynd fyrir hvernig komið er fyrir þessari þjóð. Álíka táknrænt og Mad Max búrið fyrir utan Hvíta húsið.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár