Í miðju stríði hrósar Trump verkefnum sínum: „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“

Á sama tíma og vopna­hlé við Íran hékk á blá­þræði og Repúblikana­flokk­ur­inn stóð frammi fyrir póli­tískri áhættu vegna kostn­aðar stríðs­ins, sá Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til þess að blaða­menn sem voru saman komnir á for­seta­skrif­stof­unni vissu hvað honum lá helst á hjarta: end­ur­bætur á hinni sögu­frægu speg­il­tjörn við Lincoln-minn­is­varð­ann.

Í miðju stríði hrósar Trump verkefnum sínum: „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“

Í fyrsta sinn sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kom opin­ber­lega fram í nokkra daga hóf hinn 79 ára gamli for­seti und­ir­ritund­ar­at­höfn for­seta­til­skip­ana með umræðum um end­ur­bætur á speg­iltjörn­inni, en vegna þeirra hefur einum vin­sælasta ferða­manna­stað höf­uð­borg­ar­innar verið lokað.

„Hún var opnuð árið 1922 og lak alltaf,“ kvart­aði for­set­inn. 

Stærri en skýjakljúfar

Trump, sem sjaldan er líf­legri en þegar hann ræðir bygg­ing­ar­fram­kvæmdir og end­ur­bætur, hrós­aði því „mjög sér­staka efni“ sem notað var við verkið. Áætlað er að tjörnin verði opnuð aftur fyrir þjóð­há­tíð­ar­dag­inn þann 4. júlí, þegar 250 ár verða liðin frá sjálf­stæði Banda­ríkj­anna.

Fram­kvæmdin hefur sætt gagn­rýni vegna kostn­aðar og eins vegna þess hvernig samn­ing­ur­inn um verkið var gerður.

Með því að nota skýr­ing­ar­mynd sem bar yfir­skrift­ina „Tjörnin okkar er stærri en skýja­kljúfar“ bar Trump saman stærð tjarn­ar­innar við hæð þriggja frægra bygg­inga, þar á meðal Empire State-bygg­ing­una í New York.

Bar sig saman …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár