Gervigellur í eldheitum stuðningi við Trump

Heill­andi ungar konur hylla Donald Trump og lasta and­stæð­inga hans af miklum eld­móði. Þær eru ekki til.

Gervigellur í eldheitum stuðningi við Trump
Fölsk MAGA-kona Jessica Foster náði að safna milljón fylgj­endum á Instagram áður en í ljós kom að þessi ungi trump­isti í hernum var í raun til­bún­ingur.

Ljós­hærðar konur í sund­fötum eða her­manna­bún­ingum lofa Donald Trump Banda­ríkja­for­seta og lasta and­stæð­inga hans – en þessir áhrifa­valdar eru skap­aðir með gervi­greind og flæða yfir sam­fé­lags­miðla með eld­heitum póli­tískum skila­boðum fyrir þing­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum.

Upp­gangur ofurraun­veru­legra gervi­menna – sem herma eftir póli­tískum slag­orðum Trumps á borð við „Ameríka fyrst“ og end­ur­óma mál­flutn­ing hans í málum eins og inn­flytj­enda­málum – und­ir­strikar notkun nýrrar tækni í við­leitni til að virkja íhalds­saman kjós­enda­hóp hans sem kenndur er við MAGA, Make America Great Again.

„Hvar eru allir MAGA-vinir mínir? Ef þú kaust Trump, segðu það þá hátt og skýrt í athuga­semd­unum og þú færð nýjan fylgj­anda frá Texas,“ segir heill­andi ung kona á TikTok með rauða MAGA-der­húfu. Hún er ekki til.

„Trump er fram­tíð Ameríku,“ stendur í texta yfir öðru TikTok-mynd­bandi sem búið er til með gervi­greind og sýnir ung­lings­stúlku á strönd með banda­ríska fán­ann blakt­andi í bak­grunni.

Í Instagram-mynd­bandi við lagið „YMCA“ með Village People segir gervi­g­ella, sem lýst er sem „MAGA-föð­ur­lands­vini“, að hún hafi „komið út úr skápnum sem Trump-stuðn­ings­maður“.

Ekki er ljóst hverjir standa á bak við gervi­greind­ar­að­gang­ana og hvort þeir séu hluti af skipu­lagðri áhrifa­að­gerð fyrir kosn­ing­arnar í nóv­em­ber sem munu ráða því hvort repúblikanar haldi yfir­ráðum sínum á þing­inu.

Fyrr á þessu ári birti Trump sjálfur á sam­fé­lags­miðl­inum sínum Truth Social mynd­band af plat­ínu­ljós­hærðri gervi­greind­argellu– með því glæsi­lega útliti sem er vin­sælt meðal aðdá­enda hans – sem bar fram til­efn­is­lausar ásak­anir um spill­ingu á hendur Gavin Newsom, rík­is­stjóra Kali­forníu úr röðum demókrata.

Móta almenningsálitið

Síðustu mán­uði hafa banda­rískir fjöl­miðlar greint hund­ruð gervi­greind­ar­bú­inna áhrifa­valda sem styðja Trump – unga menn og konur í her­manna­bún­ingum eða klædda sem inn­flytj­enda­full­trúar – sem tjá sig um við­kvæm póli­tísk mál, þar á meðal þung­un­ar­rof og deil­urnar við Íran.

Rann­sókn­ar­stofan Governance and Responsi­ble AI Lab (GRAIL) við Purdue-háskóla hefur einnig fylgst með fjöl­mörgum slíkum aðgöngum á TikTok, Instagram og Facebook.

„Vaxandi bylgja póli­tískra gervi­greind­ar­á­hrifa­valda í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2026 gefur inn­sýn í fram­tíð þar sem hægt er að nota ofur­mark­visst gervi­greind­ar­efni til að móta almenn­ings­á­litið,“ sagði Andrew Yoon hjá CivAI, sjálfs­eign­ar­stofnun sem ein­beitir sér að mögu­leikum og hættum gervi­greindar, í sam­tali við frétta­stof­una AFP.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    They deserve each other...
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Eina vörnin gegn upplýsingaóreiðu er fræðsla og þekking. Ábyrgð mentamálaráðuneitisins er mikil.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Að sníða sér stakk eftir vexti er ágætisregla sem ég hef þó alltaf passað mig á að faraeftir
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár