Bandamaður Trumps segir næsta stríð liggja fyrir

„Dag­ar þeirra eru tald­ir,“ seg­ir þing­mað­ur­inn Linds­ey Gra­ham sem lýs­ir um­snún­ingi í ut­an­rík­is­stefnu Re­públi­kana frá fyrri stefnu Trumps.

Bandamaður Trumps segir næsta stríð liggja fyrir
Boðar næsta stríð Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna, talar við undirritun frumvarps í forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu þann 3. febrúar 2026 í Washington. Mynd: AFP

Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður í flokki Repúblikana frá Suður-Karólínu, segir liggja ljóst fyrir hvert næsta stríð Donalds Trump Bandaríkjaforseta verður.

Trump fyrirskipaði um helgina stóra árás á Íran, sem stendur enn yfir, þar sem þjóðarleiðtoginn Ayatollah Khameini var drepinn, eins og flestir hugsanlegir eftirmenn hans, að sögn forsetans.

Donald Trump hefur áður gagnrýnt forvera sína fyrir stríð og sérstaklega þau sem stefna að stjórnarskiptum. Hann titlaði sig „friðarforseta“.

Lindsey Graham lýsti og hrósaði allt annarri stefnu í viðtali við Fox News. „Íranska stjórnin. Móðurskip alþjóðlegrar hryðjuverkastarfsemi er við það að hrynja. Skipstjóri skipsins, Ayatollah, er steindauður.“

Hann sagði að Trump væri „gullstaðall“ utanríkisstefnu. Hann hrósaði Trump fyrir að „ljúka verki“ Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta, og benti á Nicolas Maduro, nú fyrrverandi leiðtoga Venesúela, sem sönnun fyrir vel heppnaðri stefnu, en hann var handtekinn af bandarískri sérsveit í djarfri hernaðaraðgerð í ársbyrjun.

„Ég er mikill aðdáandi Ronalds Reagan, en ég er hér til að segja ykkur að Donald Trump er gullstaðallinn fyrir repúblikana, kannski hvaða forseta sem er, þegar kemur að utanríkisstefnu,“ sagði Graham. „Maduro? Allir töluðu um hann; en Donald Trump er búinn að koma honum í fangelsi!“ sagði Graham og bætti við:

„Kúba er næst. Þeir munu falla. Þetta kommúníska einræðisríki á Kúbu? Dagar þeirra eru taldir.“

Vildi að Íslendingar ræddu við Graham

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, nefndi sérstaklega Lindsey Graham í viðtali á RÚV í janúar þegar hann lagði til að Íslendingar ræktuðu sambandið við Bandaríkin „á mjúkan hátt“, með því að ræða við aðila í kringum Donald Trump. 

„Það er hægt að gera það með ýmsum hætti. Það er hægt að fara þangað og hitta þar þingmenn, eins og Lindsey Graham og Angus King og Susan Collins og ýmsa aðra,“ sagði hann. „Kannski ættum við að beita þeirri þumalputtareglu á næstu misserum að fyrir hvern einn fund sem er tekinn í Brussel þá þurfi að taka tvo fundi í Washington, meðan þessi stormur gengur yfir.“

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þar kemur hinn sanni Framsóknarmaður upp í fyrverandi forseta vorum, rassasleikingar bestar, engin afstaða.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
5
GreiningHorft til Evrópu

„Já“ þarf mörg­um sinn­um en „nei“ bara einu sinni

Ef „nei“ verð­ur nið­ur­stað­an á morg­un leggst Evr­ópu­um­ræð­an í dvala en skýt­ur upp koll­in­um síð­ar að mati Ól­afs Þ. Harð­ar­son­ar, pró­fess­ors emer­it­us. Verði „já“ nið­ur­stað­an þyrfti að kom­ast yf­ir marga þrösk­ulda áð­ur en Ís­land gengi í ESB, hvað þá tæki upp evru. Mörg rök „nei“-hreyf­ing­ar­inn­ar séu einnig rök gegn áfram­hald­andi veru í EES.
Vildu ekki koma aftur til Íslands með 100 manna hóp
6
InnlentHorft til Evrópu

Vildu ekki koma aft­ur til Ís­lands með 100 manna hóp

Vil­borg Arna Giss­ur­ar­dótt­ir tók á móti 100 frönsk­um kon­um sem komu hing­að til að keppa í vetr­arí­þrótt­um. Kostn­að­ur­inn kom í bak­ið á skipu­leggj­end­um móts­ins sem ákváðu að fara næst til Finn­lands. Finn­ar hafa nýtt styrki ESB við upp­bygg­ingu heim­skauta­ferða­mennsku, en Vil­borg vann að verk­efni í byggða­þró­un á Suð­ur­landi sem fékk 100 millj­óna styrk þeg­ar Ís­land var síð­ast í að­ild­ar­við­ræð­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
4
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár