Sögufræga kvikmyndaverið Warner Bros., framleiðandi eða dreifingaraðili margra helstu stórvirkja bandarískrar kvikmyndasögu, eins og Casablanca, Singin’ in the Rain, 2001: A Space Odyssey, Blade Runner, Goodfellas, The Matrix og Lord of the Rings þríleiksins, lauk göngu sinni þriðjudaginn 6. október.
Lokamynd þess, sem kom út um síðustu helgi, hlaut blendnar viðtökur gagnrýnenda og fáir mættu að sjá hana. Gamanmyndin Digger, í leikstjórn Alejandro González Iñárritu og með Tom Cruise í fararbroddi stjörnum prýdds leikarahóps, mun hafa kostað 125 milljónir dala í framleiðslu, auk þess sem annað eins gæti hafa farið í markaðssetningu og framúrkeyrslu í tökum. Hún þénaði aðeins um 20 milljónir dala á heimsvísu opnunarhelgina og sumir gagnrýnendur lýstu henni sem „ófyndinni“, „pirrandi“, „sjálfumglaðri“ og „kvalafullri“.
En engin sönn kvikmyndaáhugamanneskja ætti að sleppa því að sjá hana í bíó.
Kvikmyndagerð hefur lengi verið sú listgrein sem hvað háðust er peningaöflunum, enda einstaklega kostnaðarsamt að framleiða, dreifa og markaðssetja hverja …






















































Athugasemdir