Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins

Fram­kvæmda­stjóri banda­rísks fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tækis segir það hafa greitt fyrir skipu­lagn­ingu funda Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Washington. Ráðgjafi flokks­ins skráði greiðsl­una sem kostun kvöld­verðar. Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri flokks­ins telur hins vegar að flokk­ur­inn hafi greitt allan kostnað sjálfur.

Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
Í ferða­lag Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fór ásamt fylgd­ar­liði til funda við banda­rískt áhrifa­fólk í sept­em­ber. Það var önnur ferðin sem ráð­gjaf­inn Zachary Freeman skipu­lagði fyrir flokk­inn. Mynd: Garrett Hanson

Banda­ríska fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tækið New Iceland Advisors greiddi 18 þús­und doll­ara, jafn­virði um 2,2 millj­óna króna á núver­andi gengi, til fyr­ir­tækis Zacharys Freeman vegna heim­sóknar sendi­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins til Washington árið 2025. 

Þetta kemur fram í umfjöllun Reykja­vík Grapevine.

J. Heath Cardie, fram­kvæmda­stjóri New Iceland Advisors, segir í sam­tali við Grapevine að greiðslan hafi staðið undir þóknun fyrir að skipu­leggja fundi sendi­nefnd­ar­innar með banda­rískum þing­mönnum og ráðu­neytum. Hann lýsir þjón­ust­unni sem hags­muna­gæslu en segir hvorki ein­stak­ling­ana né flokk­inn hafa fengið pen­inga.

„Engir pen­ingar fóru til þeirra per­sónu­lega. Við gáfum flokknum enga pen­inga,“ segir Cardie í sam­tali við Grapevine. „Bara hags­muna­gæsla, svona virkar Washington.“

Í gögnum sem fyr­ir­tæki Freemans, Imperial Independent Media, skil­aði til banda­rískra yfir­valda er greiðsl­unni hins vegar lýst sem kostun kvöld­verðar fyrir sendi­nefnd flokks­ins. Samkvæmt Grapevine eru fundir ekki nefndir í þeirri færslu.

Ólíkar skýringar á greiðslunni

Greiðslan barst Imperial á tíma­bil­inu 3.–7. …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Má gestgjafi ekki bera kostnað af móttöku gesta? Gjafir umfram það væru þó allt annað mál.
    0
  • Haukur Haraldsson skrifaði
    Nú væri gaman að vita hvort það voru sömu aðilar sem kostuðu það „nokkurra vikna“ ferðalag sem Diljá Mist fór í um Bandaríkin síðasta sumar.
    1
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    ekki skemma sjáið hvað þau eru glöð og ánægð að einhverjir vilja gleðja þau.
    2
  • Óskar Þór Árnason skrifaði
    Því miður kemst ekki svona fróðleikur um íslensku pólitíkina nægilega vel til kjósenda.
    4
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Fyllsta ástæða er að óttast að ráðamenn Sjálfstæðisflokksins séu í einhverju pukri við hagsmunagæsluaðila á vegum bandarískra hergagnaframleiðenda. Af hverju hefur forysta Sjálfstæðisflokksins snúist gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Innan þess er stöðugt unnið við að styrkja mannréttindi og lýðræði sem samstarfsverkefni allra aðildarríkja. Einhverra hluta vegna var vísvitandi verið að ljúga að þjóðinni með vægast sagt mjög vafasömum fullyrðingum sem standast ekki. Ekkert aðildarríki innan þess hefur þurft að láta af hendi auðlindir sínar né fullveldi. En sú hætta er fyrir hendi sé verið að viðra sig með vafasömum aðilum sem tengjast hergagnaframleiðslu.
    5
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ætli Guðrún geri sér grein fyrir því að hún fór þarna til að ræða við fulltrúa sem eru undir regnhlíf hugmyndafræðilegara afla, sem telja hana ekki líffræðilega hæfa til að hafa kosningarétt og hvað þá fara með embætti?
    Ég get ekki sagt að ég sé jafn hissa að sjá karlana í hópnum.
    Hvernig tilfinning ætli það sé að ræða við einhvern sem telur þig líffræðilega óæðri?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár