Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á

Aðeins 15 pró­sent hafa jákvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Elds­neyt­is­verð í Frakk­landi er í sögu­legu hámarki og fram­halds­skóla­nemar mót­mæla.

Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Marine Le Pen Kannanir sýna að hún á einna mesta mögu­leika á að verða næsti for­seti Frakk­lands næsta vor. Mynd: JEFF PACHOUD / AFP

Vin­sældir Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta hafa ekki mælst minni síðan hann tók við emb­ætti árið 2017, sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem birt var í dag.

Í könnun Ipsos BVA-Cesi sögð­ust aðeins 15 pró­sent svar­enda hafa jákvætt álit á Macron. Það er einu pró­sentu­stigi minna en mán­uði áður og lægsta hlut­fallið síðan hann tók við for­seta­emb­ætti.

Könnunin birt­ist á sama tíma og elds­neyt­is­verð í Frakk­landi hefur aldrei verið hærra og fram­halds­skóla­nemar mót­mæla. Svar­endur nefndu kaup­mátt sem helsta áhyggju­efni sitt.

Áhyggjur af fram­tíð vel­ferð­ar­kerfis lands­ins og skulda­stöðu Frakk­lands voru einnig ofar­lega á lista.

Til sam­an­burðar segj­ast 37 pró­sent styðja Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, í starfi. 

Af stjórn­mála­mönnum sem þykja geta tekið við af Macron voru leið­togar fjar­hægri­manna, Jordan Bardella og Marine Le Pen, enn vin­sæl­astir. Stuðn­ingur við þau mæld­ist 33 og 32 pró­sent.

Stuðn­ingur við þau bæði minnk­aði frá fyrri mán­uði, um þrjú pró­sentu­stig hjá Bardella og …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu