Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði

Robert E. Hall og Michael Woodford hafa rannsakað hvernig ákvarðanir einstaklinga og fyrir­tækja tengjast þróun hagkerfisins og hvernig hagstjórn getur stuðlað að stöðug­leika.

Tilkynnt
Tilkynnt Sænska nóbels­nefndin til­kynnti um afhend­ingu verð­laun­anna í morgun. Mynd: JONATHAN NACKSTRAND / AFP

Robert E. Hall og Michael Woodford hljóta Nóbels­verðlaunin í hagfræði í ár fyrir rann­sóknir á örhagfræðilegum grunni þjóð­hagslegs stöðug­leika. 

Rann­sóknir þeirra fjalla um hvernig ákvarðanir fólks og fyrir­tækja – til dæmis um kaup, sparnað, ráðningar og verð – hafa áhrif á hagkerfið í heild. Þær hjálpa til við að skýra hvernig stjórn­völd og seðla­bankar geta dregið úr sveiflum í efnahags­lífinu og stuðlað að stöðug­leika.

Hall er prófessor í hagfræði við Stanford-háskóla og tengist einnig Hoover-stofnuninni. Rann­sóknir hans hafa meðal annars beinst að atvinnu, verðbólgu, tækni­breytingum og hagstjórn. Hann hefur einnig rannsakað hlutverk neyslu í hagsveiflum.

Woodford er prófessor við Columbia-háskóla og hefur einkum rannsakað peningamála­stefnu. Meðal viðfangs­efna hans eru áhrif vaxta á verðbólgu, hvernig peningamála­stefna hefur áhrif á ákvarðanir heimila og fyrir­tækja og hvernig samskipti seðla­banka við almenning tengjast framkvæmd hennar. Bók hans Interest and Prices, sem kom út árið 2003, fjallar um fræði­legan grunn peningamála­stefnu.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár