Spáði fyrir um framtíð Rússlands

Fólk trúði ekki Önnu Polit­kovskaju, þeg­ar hún sagði að far­ið yrði fram á „al­gjöra und­ir­gefni við Pútín“.

Spáði fyrir um framtíð Rússlands
Minnast Önnu Nikolaj Rybakov, leiðtogi frjálslynda flokksins Jabloko í Rússlandi, heimsækir minnisvarða um myrta rússneska blaðamanninn Önnu Politkovskaju fyrir utan fjölbýlishúsið sem hún bjó í Moskvu í dag, 7. október 2026, þegar 20 ár eru liðin frá morðinu á henni. Mynd: IGOR IVANKO / AFP

Myrti rússneski blaðamaðurinn Anna Politkovskaja, sem var skotin til bana fyrir utan heimili sitt í Moskvu árið 2006, hafði „spáð fyrir um“ þróun Rússlands undir stjórn Vladímírs Pútíns, sagði ritstjóri hennar við AFP þegar Rússar minntust þess að 20 ár eru liðin frá dauða hennar.

Politkovskaja hafði af óttaleysi fjallað um stríðið í Tsjetsjeníu og valdatöku Pútíns og varað við einræðistilhneigingum hans á tíma þegar honum var fagnað og hann tekinn í sátt á Vesturlöndum.

Hún var skotin til bana í lyftu fjölbýlishússins þar sem hún bjó í miðborg Moskvu 7. október 2006 – á 54 ára afmælisdegi Pútíns.

Morðið á henni markaði tímamót í rússneskri blaðamennsku.

Tveimur áratugum síðar er Pútín enn við völd, stríð Rússlands gegn Úkraínu – sem hefur kostað hundruð þúsunda lífið – er á fimmta ári og kúgun innanlands hefur náð stigi sem ekki hefur sést síðan á tímum Sovétríkjanna.

„Allt sem er að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rússland Pútíns

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár